Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júlí 2026 13:31 Tómas Valur Þrastarson kynntur til leiks fyrir leik með Washington State á síðustu leiktíð. Getty/Mitchell Layton Íslenski körfuboltamaðurinn Tómas Valur Þrastarson er búinn að finna sér nýjan skóla eftir að hann ákvað að yfirgefa Washington State-háskólann eftir síðasta vetur.
Tómas Valur heldur sig áfram í Washington-fylki en færir sig til Seattle-borgar til að spila með Seattle University. Tómas var í tvö tímabil í Washington State en lék þar á undan stórt hlutverk með Þór Þorlákshöfn í Bónus-deildinni hér heima. „Tómas er fjölhæfur bakvörður sem er hávaxinn og hefur reynslu af því að keppa á háu stigi,“ sagði Chris Victor, yfirþjálfari Seattle University, í frétt á heimasíðu skólans. „Árangur hans í WCC-deildinni, ásamt alþjóðlegri reynslu hans með íslenska landsliðinu, gefur honum sterkan grunn til að hafa strax áhrif á liðið okkar. Hann hefur hæfileika til að hafa áhrif á leikinn á margvíslegan hátt og við erum spennt að bjóða hann velkominn til Seattle,“ sagði Victor. Á öðru ári sínu í bandaríska háskólaboltanum, 2025–26, spilaði þessi 201 sentímetra bakvörður í 19 leikjum þrátt fyrir að hafa misst af 12 leikjum vegna fótbrotameiðsla sem hann varð fyrir í fyrsta leik West Coast Conference-deildarinnar. Hann var með 8,8 stig og 4,1 frákast að meðaltali í leik og skoraði 20 stig gegn Nevada, sem er persónulegt met. Hann náði einnig persónulegu meti í fráköstum, átta talsins, í sigri á Mercer áður en hann sneri aftur til keppni seint á tímabilinu. Á nýliðaári sínu, 2024–25, var Þrastarson valinn í úrvalslið nýliða í WCC-deildinni eftir að hafa spilað í 31 leik, þar af 11 í byrjunarliði. Hann var með 4,5 stig og 3,1 frákast að meðaltali í leik fyrir, með 57 prósenta skotnýtingu úr teignum og 41 prósenta nýtingu í þriggja stiga skotum. Hann skoraði þá 17 stig, sem var persónulegt met á þeim tíma, í byrjunarliðsleik gegn Loyola Marymount. View this post on Instagram A post shared by Seattle U Men's Basketball (@seattleumbb)
Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Víkingur - Beer Sheva | Ísraelsmenn mæta í Víkina Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Fleiri fréttir Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Sjá meira