„Þú verður að spyrja hann að því“ Valur Páll Eiríksson skrifar 1. júlí 2026 10:55 Jón Þór þakkar Hrannari fyrir samstarfið sem tók enda í gær. Hann leitar nýs aðstoðarþjálfara. Vísir Jón Þór Hauksson, þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta, segir brotthvarf Hrannars Boga Jónssonar sem aðstoðarþjálfara liðsins hafa borið bratt að. Tveir þjálfarar í yngri flokkum stígi inn í teymið tímabundið en leit að nýjum aðstoðarþjálfara er hafin.
Líkt og greint var frá á Vísi í morgun sagði Hrannar Bogi Jónsson upp sem aðstoðarþjálfari karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta í gærkvöld. Hann hafði sinnt þeirri stöðu frá því í fyrrahaust og var fenginn til liðsins af Jökli Elísabetarsyni, sem hafði áður starfað með Hrannari hjá Augnabliki. Því var velt upp hvort Hrannar yrði áfram þegar Jökli var sagt upp þann 12. júní síðastliðinn og Jón Þór Hauksson var ráðinn þjálfari liðsins í stað Jökuls. Hrannar sinnti starfinu áfram en þó aðeins í rúmar tvær vikur, þar sem hann baðst lausnar frá Garðabæjarfélaginu í gær. „Þetta kom snöggt upp. Við þökkum Hrannari kærlega fyrir góð störf en við leysum þetta bara innanhúss. Brynjar Kristmundsson og Olgeir Sigurgeirsson stíga inn í teymið tímabundið,“ segir Jón Þór í samtali við Vísi. Olgeir þjálfar þriðja flokk karla hjá félaginu og Brynjar fjórða flokk. Þeir eru þá báðir þjálfara venslaliðs Stjörnunnar, KFG. Þeir stíga nú inn í meistaraflokksteymi Stjörnunnar samhliða því. Því er þá velt upp hvað lægi að baki og hvers vegna þessi U-beygja hefði orðið, svo skömmu eftir að greint var frá því að Hrannar yrði áfram aðstoðarþjálfari. Jón Þór segir Hrannar þurfa að svara fyrir það sjálfur. „Þú verður að spyrja hann að því.“ Jón Þór segist ánægður með lausnina, að þeir Brynjar og Olgeir verði honum til halds og trausts, en leitar þó nýs aðstoðarþjálfara. „Sú leit er hafin. En á meðan er frábært að fá tvo reynslumikla menn inn í Brynjari og Olgeiri. Við erum vel mannaður og í toppmálum.“ Stjarnan hefur spilað þrjá leiki eftir þjálfaraskiptin. Liðið gerði 4-4 jafntefli við Breiðablik í fyrsta leik þann 16. júní, tapaði svo 2-1 fyrir ÍBV í Eyjum þann 21. júní en vann fyrsta sigurinn undir stjórn Jóns Þórs, 3-1 á KA, síðasta sunnudag. Næst mætir Stjarnan botnliði FH í Kaplakrika á föstudaginn kemur, 3. júlí.
Stjarnan Besta deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira