Fleiri augu á mér í þessari deild Stefán Árni Pálsson skrifar 1. júlí 2026 17:32 Kristinn Pálsson á landsliðsæfingu í Ásgarði í vikunni. „Þetta er bara eitthvað sem kom frá umboðsmanninum. Auðvitað þekki ég svæðið og hef komið þarna en þú veist, þetta er bara körfuboltaleg ákvörðun og síðan náttúrulega hjálpar til að það sé beint flug og maður er náttúrulega með fjölskyldu og það er þægilegt að fara fram og til baka. En þetta er hörkudeild,“ segir Kristinn Pálsson á landsliðsæfingu í vikunni.
Ísland undirbýr sig núna fyrir landsleiki gegn Ítölum annað kvöld og Bretum úti 5. júlí. Kristinn samdi á dögunum við Alicante í spænsku B-deildinni eftir að hafa leikið á Ítalíu. „Þetta er klárlega svona skref fram á við og líka fleiri augu á þessari deild heldur en deildinni sem ég var í og þetta gæti opnað margar dyr fyrir mig, kannski upp á framhaldið,“ segir Kristinn. Landsliðsfyrirliðinn Ægir Þór Steinarsson lék sjálfur með Alicante og ræddi Kristinn við hann áður en hann samdi við félagið. Ætla vinna þá aftur „Ég heyrði í honum um leið og ég fékk tilboðið og spjallaði við hann heillengi um þetta og hann var náttúrulega þarna með fjölskyldu líka. Það hjálpaði mér kannski að taka ákvörðun líka um þetta.“ Það er ekki langt síðan að íslenska landsliðið vann það ítalska ytra. „Ég var meiddur í fyrri leiknum við Ítalíu en fékk að vera með strákunum í kringum leikinn. Það er sturlað að vinna svona stórar þjóðir í körfuboltaheiminum, á útivelli, og við erum búnir að gera það núna tvisvar gegn Ítalíu. Núna er kominn tími til að gera það á heimavelli líka.“ Hann segir að Ítalarnir hafi fengið mikið sjokk eftir tapið. „Menn höfðu enga trú á okkur og þannig er þessi heimur bara – við erum alltaf lítilmagninn (e. underdogs), sama á móti hverjum við erum að spila. Við þurfum bara að gera það að okkar einkenni, eins og við höfum gert. Þegar ég kom inn í klefann hjá mínu félagsliði eftir þetta voru allir bara í sjokki, ánægðir fyrir okkar hönd en pirraðir út í sitt landslið.“ Kristinn er í dag orðinn mjög reyndur landsliðsmaður. vísir/Anton Ítalir eru nú þegar komnir upp úr riðlinum en liðin taka stigin með sér svo allir leikir skipta máli. „Síðan er þetta líka upp á stoltið hjá þeim. Að tapa tvisvar fyrir Íslandi er ekki gott fyrir svona stóra körfuboltaþjóð. En við mætum bara til að vinna, hvort sem þeir eru klárir eða ekki. Við hugsum bara um alla þessa litlu punkta sem þarf að hafa í huga til að vinna þessar stóru þjóðir. Við vorum gríðarlega nálægt þessu síðast og aftur núna. Við gætum komið okkur í frábæra stöðu til að fara með heilmörg stig inn í milliriðilinn en við þurfum að byrja á þessu verkefni gegn Ítalíu og klára það sem við þurfum að klára.“ Hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni en þar ræðir Kristinn einnig um leikinn við Ítali annað kvöld. Klippa: Landsliðsfyrirliðinn hjálpaði með ákvörðunina
Landslið karla í körfubolta Mest lesið Uppgjör: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið Fótbolti Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Golf KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld Íslenski boltinn „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Íslenski boltinn Liverpool og Barcola náð samkomulagi Fótbolti Áhorfendur í áfalli eftir að leikmaður hrundi niður göng Fótbolti Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Fótbolti UEFA og fleiri sambönd sögð farin að ræða mótahald án FIFA Fótbolti Ótrúlegt innkast varð að marki Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Sjá meira