Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Lovísa Arnardóttir skrifar 1. júlí 2026 21:10 Harpa Pétursdóttir og Andrés Ingi Jónsson hjá Barnaheill. Aðsend Mannréttindahúsið hefur stækkað með opnun nýrrar álmu og eru nú yfir 40 félög með aðsetur í húsinu. Mannréttindahúsið er rekið af ÖBÍ réttindasamtökum.
Með stækkuninni flytja 14 ný félög inn í húsið, þau eru Almannaheill, ADHD samtökin, Auðlesið, Átak, Barnaheill, Börn með krabbamein, CP félagið, EAPN á Íslandi, Íslensk ættleiðing, Neistinn, PCOS samtök Íslands, Sjónarhóll, TMF og Umhyggja. „Hér deila félög reynslu, þekkingu og hugmyndum, styðja hvert annað og þróa samstarf sem styrkir réttindabaráttu á ólíkum sviðum. Slíkur vettvangur skiptir máli, ekki síst á tímum þar sem traust, samstaða og virðing fyrir mannréttindum eiga undir högg að sækja. Við hlökkum til að fá þessi öflugu félög í hús, fögnum deginum og enn auknum krafti.“ segir Eva Þengilsdóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ og Mannréttindahússins, í tilkynningu um stækkunina. Mannréttindahúsið er í Sigtúni 42.Aðsend Þar kemur fram að frá opnun hússins, árið 2023, hafi Mannréttindahúsið þróast í miðstöð fjölbreyttra samtaka sem vinna að réttindamálum, félagslegri þátttöku og bættum lífsgæðum fólks. Daglegt samstarf innan hússins hafi leitt til aukinna tengsla milli félaganna, sameiginlegra verkefna og öflugri raddar borgarasamfélagsins. „Á hverju ári sækir fjöldi fólks Mannréttindahúsið heim til funda, námskeiða, ráðgjafar og annarra viðburða. Með stækkuninni skapast aukið rými fyrir starfsemi félaganna og enn fleiri tækifæri til samstarfs í þágu mannréttinda,“ segir enn fremur í tilkynningunni.
Mannréttindi Félagasamtök Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira