Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar 2. júlí 2026 13:02 Það var auðvitað rangt sem sagt var í kvöldfréttum RÚV 28. júní að til stæði að færa Laugaveg 1 í upprunalega mynd frá 1848. Mynd af húsinu sem fylgdi fréttinni, frá því um 1893, sýndi einmitt húsið í því sem næst upprunalegri gerð, en sú gerð hússins sem nú hins vegar stendur til að endurbyggja er skrítinn bastarður frá fyrstu áratugum 20. aldar. Þá voru engar hugmyndir uppi um að varðveita húsið. Til stóð að randbyggja á Laugaveginum 3-4 hæða steinsteypt hús. Húsið var því víkjandi og beið þess eingöngu að verða rifið. Stóru verslunar-gluggarnir sem þá höfðu verið settir í húsið voru ekki úthugsuð fagurfræðileg betrumbót, þeir áttu aldrei að standa lengi, þetta var redding svona þangað til að stærra hús yrði byggt á lóðinni með þá stórum verslunar-gluggum á jarðhæð og minni krosspósts-gluggum á efri hæðum eins og þá tíðkaðist. En það gerðist aldrei og húsið stóð áfram og stóð reyndar svo lengi að á endanum var það orðið eitt af elstu húsum Reykjavíkur. Þá kemur upp sú hugmynd að húsið beri að varðveita. Þess vegna skýtur það skökku við, að nú þegar það stendur til að endurbyggja húsið, sé það þessi skítaredding frá ca 1915 (líklega) sem er lögð til grundvallar. Mig grunar að jafnvel húsasmíðameistarinn sem setti stóru gluggana í hefði orðið svolítið brugðið við. Hér má sjá upprunalegt útlit hússins ásamt fyrirhugaðri endurbyggingu. Húsið er reyndar farið. Það var rifið núna nýlega eða þ.e.a.s. það sem eftir var af því, sem var ekki svo ýkja mikið segja menn mér. Þarna verður því um nýbyggingu að ræða, þó svo að einhverjar fáeinar spýtur verði mögulega endurnýttar (eða ekki). Ég má til með að bæta því við í því samhengi að sú nálgun á endurbyggingu eldri húsa er algengari en flesta grunar hvort sem er hér á landi eða annarstaðar og ekkert sérstakt sem ég hef á móti því. Höfum í huga að það eru oftast fagurfræðilegar ástæður fyrir því að ríkur vilji er til að halda í eldri hús og götumyndir, hér á landi sem og annarsstaðar, það er ekki bara aldurinn sem ræður því hvort við viljum halda í hús. Það er ástæða til að halda í það sem er fallegt og vel gert, leggur sitt af mörkum til að búa til fallega götumynd og stuðlar að umhverfisgæðum í almannarými. Það sem er ljótt og illa gert má fara. Þannig verður menning til. Ég sem mikill húsverndararsinni sé litla hagsmuni fólgna í því að húsið sé gert upp í þeirri mynd þegar búið var að forsmá útlit þess. Ekki menningarlega, sögulega, fagurfræðilega eða umhverfisgæðalega. Og ekki snýst þetta lengur um að vernda viðinn. Hví ekki að endurbyggja hús sem prýði er af? Er eitthvað eftirsóknarvert við að endurvekja útlit húss sem búið var að eyðileggja. Hús taka að jafnaði breytingum í gegnum tíðina. Stundum eru breytingar til hins betra, bæði fagurfræðilega og út frá notagildi og þá er sjálfsagt og eðlilegt að halda í þær. Áhugafólk um húsvernd deildi um það á sínum tíma þegar Austurstræti 22 var endurbyggt, hvort miða ætti gluggasetningu við upprunalega gerð eða miðja 19. öld því báðar gerðir voru fallegar. Fáum datt hins vegar í hug að miða við Karnabæjar-útlitið frá miðri 20. öld. Í tilfelli Laugavegs 1 er nokkuð augljóst að notagildið var aðal drifkrafturinn á bak við stóru verslunar-gluggana, fagurfræðin var ekki höfð að leiðarljósi. Nógu oft hefur raunverulegum umhverfisgæðum verið fórnað á altari annara hagsmuna og merkileg, falleg hús verið rifin sem fengur hefði verið að halda í, til að við getum leyft okkur að endurbyggja hús eingöngu út frá einhverjumsagnfræðilegum nördisma eða öllu heldur einhverri pervertískri nostalgíu fyrir ljótleika. Tillaga sem Torfusamtökin settu fram sem sýnir húsið lyft upp um hæð með stórum verslunargluggum á jarðhæð og upprunalegum klassískum gluggum á efri hæð. Fyrir ekki svo mörgum árum beittu Torfusamtökin sér fyrir því að Laugavegi 4-6 yrði bjargað frá niðurrifi. Í þeirri baráttu var það grundvallaratriði að sína fram á að húsin gætu orðið falleg, að það væru ekki þáverandi hryggðarmynd sem ætti að vernda heldur ætti að endurreisa húsin í þeirri mynd sem þau voru sem fallegust eða í það minnsta hafa það útlit til hliðsjónar ef byggð yrðu ný hús. Þá man ég eftir að hafa heyrt ákveðna aðila tala um að “vernda þyrfti söguna” og að þær breytingar sem hefðu verið gerðar í gegnum tíðina hefðu jafn mikið gildi og hvað annað. Þetta fannst mér eiginlega galið í ljósi þess að þá þegar var búið að leyfa niðurrif á húsunum m.a. vegna þess hversu mikið lýti þau þóttu vera á götumyndinni. Svo varð úr að húsunum var bjargað og þau endurbyggð á mjög svo smekklegan hátt. Illu heilli var nokkrum árum seinnabyggt við þau án tilfinningar fyrir húsunum og staðarandanum og heildarmyndin því miður hálf sorgleg þarna í dag. En margar aðrar betur heppnaðar fyrirmyndir má sjá víða. T.d. Lækjargata 2, Nýja bíó, Hafnarstræti 18, Laugavegur 35 og fleiri dæmi sem flestir geta verið sammála um að eru til fyrirmyndar.Varðandi Laugaveg 1 þá eru svo margar heillavænlegri leiðir sem ég sé í hendi mér. Forsendurnar eru: Stórir verslunargluggar sem settir voru í húsið í upphafi 20. aldar voru ekki til að fegra húsið. Einlyft hús af þessari stærð og gerð þolir einfaldlega illa svona stóra glugga. Húsið verður „götótt“ og upprunalega listasúðin endasleppt. Út frá notagildi dagsins í dag eru þessir sömu stóru verslunargluggar nánast ómissandi fyrir þann rekstur sem vilji er til að hafa í húsinu Sitthvorum megin við gamla húsið eru litlar seinni tíma skúrabyggingar sem blandast við jarðhæðina og gera útlínur eldra hússins mjög svo óljósar. Ekki er vilji til að opna þarna á milli og fórna þannig verslunarrými. Sitthvorum megin við skúrabyggingarnar eru stór og stæðileg hús í klassiskum stíl, byggð samkvæmt skipulagi þar sem til stóða að randbyggja hús af þeirri stærð upp allan Laugaveginn. Húsið í upprunalegri stærð verður því alltaf einhverskonar míníatúr á milli þessara stærri húsa. Það er rík hefð fyrir því að hækka hús til að auka notagildi þeirra og hefur verið gert oft á Laugavegi og víðar, lengur en elstu menn muna. Sjaldan er mikil eftirsjá af því. Lítið er eftir af heillegu timbri úr upprunalega húsinu og þess vegna ekki mikið minjagildi bókstaflega fólgið í því að halda í spýturnar á sínum stað. Hér verður faktískt séð um nýbyggingu að ræða. Niðurstaða mín út frá þessu forsendum er því eftirfarandi. Þar sem ekki er vilji til að endurbyggja húsið á einni hæð í upprunalegri mynd og rífa skúrabyggingarnar, þá tel ég blasa við sú lausn að lyfta húsinu upp um eina hæð. Halda í upprunalegt útlit hússins á efri hæð en neðri hæð fengi að halda í sína stóru verslunarglugga. Sama lausn og mörg fordæmi eru fyrir, t.d. fyrrnefnt nýlegt dæmi á Lækjargötu 2 en einnig eldri dæmi eins og Laugavegur 37 sem lyft var upp árið 1919. Í tilviki Laugavegs 1 myndi húsið ennfremur standa upp úr skúrabyggingunum sitt hvorum megin með skýrum og afgerandi hætti þannig að húsið yrði á allan hátt mun reisulegra. Höfundur er tónlistarmaður og áhugamaður um húsvernd, byggingarlist og skipulagsmál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skipulagsmál Reykjavík Húsavernd Arkitektúr Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun