Versta martröðin hennar þýddi að draumur Bergrósar rættist Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2026 09:02 Franska CrossFit-konan Claudia Gluck sat eftir í undankeppninni þrátt fyrir að halda fyrst að hún hefði komist á heimsleikana. @claudia_glk Franska CrossFit-konan Claudia Gluck hefur tjáð sig um vonbrigðin gríðarlegu og þá staðreynd að hún missir af heimsleikunum í CrossFit þrátt fyrir að halda að hún væri komin með farseðilinn þangað.
Íslenska CrossFit-konan efnilega Bergrós Björnsdóttir er á leið á heimsleikana eftir að Gluck og ein önnur fengu á sig refsingu. Bergrós hoppaði úr níunda sæti og upp í sæti sjö en sjö efstu í nethluta undanúrslitanna tryggðu sér sæti á heimsleikunum í CrossFit 2026. Gluck er sigursælasta CrossFit-kona Frakklands og hefur keppt tvisvar á heimsleikunum í CrossFit – árið 2024, þar sem hún lenti í 12. sæti og var valin nýliði ársins í kvennaflokki, og árið 2025, þar sem hún endaði í 14. sæti. Gluck féll úr sjöunda sæti niður um átta sæti en niðurstaða Gluck í grein tvö var leiðrétt úr 10. sæti niður í 64. sæti, sem hafði keðjuverkandi áhrif á heildarstigafjölda hennar og færði hana niður í fimmtánda sæti á stigatöflunni. „Versta martröðin rættist: að ljúka erfiðu keppnistímabili með refsingu eftir yfirferð á netinu. Ég elska þessa íþrótt af öllu hjarta og ég veit að betri tímar eru fram undan. En akkúrat núna er ég niðurbrotin,“ skrifaði Claudia Gluck á samfélagsmiðla sína. „Ég ber ómælda virðingu fyrir þessari íþrótt og öllum þeim sem vinna sleitulaust að því að halda mót. Þess vegna er svo erfitt að sætta sig við það þegar dómgæslan virðist óstöðug, þegar refsingar eru gefnar í sumum tilfellum en ekki öðrum og þegar reglunum er breytt á hverju ári. Netið gerir allt svo miklu erfiðara. Allir leggja á sig óteljandi klukkustundir, orku og fórnir í þessari iðkun. Skýrleiki og samræmi væri það minnsta sem við gætum beðið um,“ skrifaði Gluck. „Þrátt fyrir allt trúi ég því enn að erfiðið sé þess virði. Ég elska ferlið, ég elska að keppa og reyna á mig gegn þeim allra bestu. Þessi íþrótt hefur gefið mér starfsferil, ótrúlegustu upplifanir og líf sem ég er þakklát fyrir hvern einasta dag,“ skrifaði Gluck. „Þessu leikjatímabili er kannski lokið fyrir mig, en lífið er það ekki. Hversu erfitt sem það er, þá virðist þetta bara ekki hafa átt að vera fyrir mig í ár. Einhvers staðar í hjarta mínu veit ég að stærri mynd er til staðar og mörg fleiri markmið/draumar sem á eftir að ná. Leiðin á toppinn í hvaða íþrótt sem er er löng og full af áföllum. Nú er kominn tími fyrir mig að jafna mig og öðlast nýtt sjónarhorn. Falla, vaxa (mikið), standa upp aftur og rísa hærra,“ skrifaði Gluck eins og sjá má hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Claudia Gluck (@claudia_glk)
CrossFit Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Sjá meira