„Ég kom fram og mamma var grátandi“ Valur Páll Eiríksson skrifar 4. júlí 2026 09:01 Bergrós Björnsdóttir þreytir frumraun sína á Heimsleikunum í crossfit, aðeins 19 ára gömul. Vísir/Sigurjón Í fyrsta sinn í þrjú ár verður íslensk kona á meðal keppenda á Heimsleikunum í crossfit. Bergrós Björnsdóttir, 19 ára gamall Selfyssingur, trúir því vart að hún feti í fótspor stjarnanna Anniear Mist og Katrínar Tönju.
Í Sportpakka gærkvöldsins var litið við í Gym 800 á Selfossi þar sem Bergrós hefur æft með það fyrir augum að komast á heimsleikana. Hún lagði nám til hliðar í vetur til að einbeita sér að fullu að því markmiði. Það var tvísýnt um tíma hvort hún kæmist inn á leikana en eftir að refsistig andstæðinga hennar á undanmóti voru staðfest var sæti á leikunum í húsi á mánudaginn var. Eftir töluverðar mótbárur og langa bið var það þeim mun ljúfara þegar ljóst var að æskudraumurinn um heimsleikasæti hefði ræst. „Mig hefur dreymt um þetta síðan ég byrjaði í crossfit þegar ég var 12 ára. Ég setti mér þá markmið um að komast á heimsleikana í fullorðinsflokki. Mér finnst það smá magnað að horfa til baka að ég trúði því raunverulega að ég kæmist hingað en samt var það svo langt í burtu á þeim tíma,“ segir Bergrós. Hvernig var tilfinningin þegar þú fékkst skilaboðin um að þú sért að fara á heimsleikana? „Það var smá fyndið. Við vissum að það kæmi núna síðasta mánudag. Ég var að bíða allan daginn eftir staðfestingunni en svo kom hún ekki fyrr en hálftíma fyrir miðnætti. Ég var orðin ótrúlega þreytt og fór eiginlega bara beint að sofa,“ segir Bergrós og hlær. „Síðan vaknaði ég daginn eftir og áttaði mig smá á því hvað væri að gerast. Ég kom fram og mamma var grátandi. Þetta var mjög indælt.“ Bara einhver stelpa frá Selfossi Dætur Íslands hafa vakið heimsathygli á leikunum undanfarin ár. Annie Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir eru stærstu stjörnu Íslands en báðar unnu þær leikana í tvígang. Annie Mist 2011 og 2012 og Katrín Tanja 2015 og 2016. Hin 19 ára gamla Bergrós trúir því vart að hún sé á leið á sama svið og átrúnaðargoðin. „Ég sé alls ekki fyrir mér að ég sé eins og þær. Þær eru bara einhverjar stjörnur og ég er bara einhver stelpa frá Selfossi. Þetta er skrýtið en á sama tíma fannst mér þær alltaf nálægt manni líka því þær eru frá Íslandi. Því fannst mér þetta raunhæft, þó þetta væru heimsleikar í einhverri íþrótt. Þær gáfu mér trúna að ég gæti komist á þennan stað,“ segir Bergrós. Innslag úr Sportpakka gærkvöldsins má sjá í spilaranum efst. Að neðan má sjá lengra viðtal við Bergrósu. Klippa: 19 ára á leið á fyrstu Heimsleikana
CrossFit Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Breiðablik - Afturelding | Hvort liðið endar sem bikarmeistari? Markasúpa í Noregi Hrútarnir frá Hollywood eiga að fara alla leið Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Öll pressan er á Ólafi Inga „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu ÍBV samdi við bandarískan hermann Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Dagskráin í dag: Golf, Formúla og Hollywood Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Þórsarar komnir á blað Sjá meira