Jóhannes Karl: „Erum hérna til þess að sækja sigra“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 3. júlí 2026 22:16 Jóhannes Karl sættir sig við stigið á Kapplakrika. Pawel/Vísir Eftir leik var Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, spurður hvort úrslit leiksins hafi verið sanngjörn. „
Já að einhverju leyti. Mér fannst við gera þokkalega vel í fyrri hálfleik sérstaklega og vorum að komast í ágætis stöður. Við spiluðum í gegnum fyrstu pressuna og náðum aðeins að opna Stjörnuna, sérstaklega í fyrri hálfleik.“ „Mér fannst þeir vera við stjórnvölin í seinni hálfleik, þó svo að við höfðum varist vel í okkar vítateig og fengið mikið af hornum þá gerðum við það þokkalega vel. Við fengum svo einhver færi í skyndisóknum. Kjartan Kári fær alveg ágætis færi hérna í lokinn og kannski að einhverju leyti sanngjörn niðurstaða.“ „Ég var virkilega ánægður með það sem mínir menn voru tilbúnir að leggja á sig. Þeir börðust frá fyrstu til síðustu mínútu og stóðu saman á erfiðum köflum í seinni hálfleik og ég er sáttur með það.“ Jóhannes Karl var ósáttur með að fá á sig jöfnunarmark strax úr horni skömmu eftir að hafa komist yfir í leiknum. „Við erum svolítið sofandi í horninu. Það á ekki að vera hægt að fá svona frían skalla. Við fengum mark á okkur mjög snemma aftur og það var pínu högg, samt sem áður ánægður með leikmennina. Þeir létu það ekkert á sig fá, héldu bara áfram. Við hefðum alveg getað verið í betri stöðu eftir fyrri hálfleikinn. Stjarnan þrýsti okkur svolítið til baka og undir lokin vantaði orku hjá okkur til að stíga upp.“ FH hefur nú farið taplaust í gegnum fjóra leiki. Jóhannes Karl er afar sáttur með það en langar í fleiri sigra. „Jákvætt að hafa ekki tapað núna í fjóra leiki, en auðvitað erum við hérna til þess að sækja sigra sérstaklega á heimavelli. Við höldum því hundrað prósent áfram. Það er stígandi í því sem við erum að gera og mikil samheldni í þessum hóp og þetta er þéttur hópur og andi í mönnum, ég fíla það. Við erum bara hægt og rólega að reyna að bæta okkur og mér sýnist við vera á réttri leið með það.“
Besta deild karla FH Íslenski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Fleiri fréttir Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Uppgjörið: Csíkszereda - Breiðablik 0-1 | Blikar áfram í Evrópu Draumurinn að rætast Liverpool fékk nýjan markvörð Allt teymi Heimis framlengir Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Vatnhamar til Vejle Sjá meira