Þór yngri en þegar báðir bræður hans skoruðu sitt fyrsta mark Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júlí 2026 08:32 Þór Andersen Willumsson fagnar sigurmarki sínu á Akranesi í gær. Sýn Sport Þór Andersen Willumsson tryggði Blikum 2-1 sigur uppi á Akranesi í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Þór kom inn á völlinn sem varamaður á 77. mínútu og skoraði sigurmarkið þremur mínútum síðar. Þetta var fyrsta mark Þórs í efstu deild en hann var aðeins 17 ára, eins mánaðar og 14 daga gamall í gær. Með því varð hann sá þriðji yngsti til að skora fyrir Blika í efstu deild. Tveir af þeim þremur yngstu hafa því skorað sitt fyrsta mark í sumar en Arnar Bjarki Gunnleifsson varð sá yngsti, 15 ára, 7 mánaða og 9 daga, þegar hann skoraði á móti KA á dögunum. Það eru aðeins Arnar Bjarki og Viktor Unnar Illugason sem hafa verið yngri þegar þeir skoruðu sitt fyrsta mark fyrir Blika. Þór er því yngri en báðir bræður hans voru þegar þeir skoruðu sitt fyrsta mark í efstu deild. Willum Þór Willumsson var 19 ára, 7 mánaða og 4 daga þegar hann skoraði sitt fyrsta mark í sínum fyrsta leik í 4-1 sigri Breiðabliks á ÍBV í apríl 2018. Willum Þór kom þá inn á völlinn sem varamaður á 63. mínútu og skoraði á 89. mínútu. Brynjólfur Andersen Willumsson varð yngri en Willum þegar hann skoraði sitt fyrsta mark. Brynjólfur var 18 ára, 11 mánaða og 26 daga þegar hann skoraði sitt fyrsta mark sem kom í 4-0 sigri Blika á KA í ágúst 2019. Hann kom þá líka inn á völlinn sem varamaður. Bæði Willum Þór og Brynjólfur eru að spila sem atvinnumenn og hafa báðir spilað fyrir íslenska A-landsliðið. Bræðurnir eru auðvitað synir Willums Þórs Þórssonar, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, sem er fyrrum ráðherra og þjálfari í efstu deild. Hann skoraði sjálfur 23 mörk í efstu deild á Íslandi. Yngstu Blikar til að skora í efstu deild: 15 ára - 7 mánaða og 9 daga Arnar Bjarki Gunnleifsson á móti KA 2026 16 ára - 3 mánaða og 25 daga Viktor Unnar Illugason á móti ÍBV 2006 17 ára - 1 mánaða og 14 daga Þór Andersen Willumsson á móti ÍA 2026 17 ára - 2 mánaða og 17 daga Kristinn Steindórsson á móti Fylki 2007 17 ára - 4 mánaða og 10 daga Árni Vilhjálmsson á móti Víkingi 2011 17 ára - 8 mánaða og 10 daga Jóhann Berg Guðmundsson á móti Fylki 2008 17 ára - 10 mánaða og 21 dags Tómas Óli Garðarsson á móti Keflavik 2011 Besta deild karla Breiðablik Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira
Þór kom inn á völlinn sem varamaður á 77. mínútu og skoraði sigurmarkið þremur mínútum síðar. Þetta var fyrsta mark Þórs í efstu deild en hann var aðeins 17 ára, eins mánaðar og 14 daga gamall í gær. Með því varð hann sá þriðji yngsti til að skora fyrir Blika í efstu deild. Tveir af þeim þremur yngstu hafa því skorað sitt fyrsta mark í sumar en Arnar Bjarki Gunnleifsson varð sá yngsti, 15 ára, 7 mánaða og 9 daga, þegar hann skoraði á móti KA á dögunum. Það eru aðeins Arnar Bjarki og Viktor Unnar Illugason sem hafa verið yngri þegar þeir skoruðu sitt fyrsta mark fyrir Blika. Þór er því yngri en báðir bræður hans voru þegar þeir skoruðu sitt fyrsta mark í efstu deild. Willum Þór Willumsson var 19 ára, 7 mánaða og 4 daga þegar hann skoraði sitt fyrsta mark í sínum fyrsta leik í 4-1 sigri Breiðabliks á ÍBV í apríl 2018. Willum Þór kom þá inn á völlinn sem varamaður á 63. mínútu og skoraði á 89. mínútu. Brynjólfur Andersen Willumsson varð yngri en Willum þegar hann skoraði sitt fyrsta mark. Brynjólfur var 18 ára, 11 mánaða og 26 daga þegar hann skoraði sitt fyrsta mark sem kom í 4-0 sigri Blika á KA í ágúst 2019. Hann kom þá líka inn á völlinn sem varamaður. Bæði Willum Þór og Brynjólfur eru að spila sem atvinnumenn og hafa báðir spilað fyrir íslenska A-landsliðið. Bræðurnir eru auðvitað synir Willums Þórs Þórssonar, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, sem er fyrrum ráðherra og þjálfari í efstu deild. Hann skoraði sjálfur 23 mörk í efstu deild á Íslandi. Yngstu Blikar til að skora í efstu deild: 15 ára - 7 mánaða og 9 daga Arnar Bjarki Gunnleifsson á móti KA 2026 16 ára - 3 mánaða og 25 daga Viktor Unnar Illugason á móti ÍBV 2006 17 ára - 1 mánaða og 14 daga Þór Andersen Willumsson á móti ÍA 2026 17 ára - 2 mánaða og 17 daga Kristinn Steindórsson á móti Fylki 2007 17 ára - 4 mánaða og 10 daga Árni Vilhjálmsson á móti Víkingi 2011 17 ára - 8 mánaða og 10 daga Jóhann Berg Guðmundsson á móti Fylki 2008 17 ára - 10 mánaða og 21 dags Tómas Óli Garðarsson á móti Keflavik 2011
Yngstu Blikar til að skora í efstu deild: 15 ára - 7 mánaða og 9 daga Arnar Bjarki Gunnleifsson á móti KA 2026 16 ára - 3 mánaða og 25 daga Viktor Unnar Illugason á móti ÍBV 2006 17 ára - 1 mánaða og 14 daga Þór Andersen Willumsson á móti ÍA 2026 17 ára - 2 mánaða og 17 daga Kristinn Steindórsson á móti Fylki 2007 17 ára - 4 mánaða og 10 daga Árni Vilhjálmsson á móti Víkingi 2011 17 ára - 8 mánaða og 10 daga Jóhann Berg Guðmundsson á móti Fylki 2008 17 ára - 10 mánaða og 21 dags Tómas Óli Garðarsson á móti Keflavik 2011
Besta deild karla Breiðablik Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira