Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Kjartan Kjartansson skrifar 6. júlí 2026 08:11 Nigel Farage (t.h.) er leiðtogi Umbótaflokksins sem hefur mælst stærsti flokkur landsins í skoðanakönnunum undanfarin misseri. Hann virðist hafa fjármagnað lífsstíl sinn með framlögum frá auðkýfingum undanfarin ár. Vísir/EPA Breskir þingmenn kalla sumir eftir að siðanefnd þingsins hefji nýja rannsókn á Nigel Farage, leiðtoga Umbótaflokksins, eftir að upplýst var um fríðindi sem hann þáði frá dæmdum fjársvikara. Herða á reglur um gjafir til stjórmálamanna til þess að auka gagnsæi.
Farage þáði gjafir frá George Cottrell, rafmyntafjárfesti sem hefur setið inni fyrir fjársvik í Bandaríkjunum, sem hann gaf ekki upp samkvæmt umfjöllun Sunday Times um helgina. Cottrell þessi greiddi fyrir öryggisgæslu og starfsmenn til þess að sinna samfélagsmiðlum fyrir Farage og hýsti hann í íbúð sinni nærri Buckingham-höll áður en hann varð þingmaður. Leiðtogi Umbótaflokksins er þegar til rannsóknar hjá siðanefnd breska þingsins vegna fimm milljóna punda gjafar sem hann fékk frá Christopher Harborne, rafmyntaauðkýfingi, og gaf heldur ekki upp. Þingmenn Frjálslyndra demókrata hafa formlega óskað eftir því að siðanefndin taki nýjustu uppljóstranirnar til rannsóknar. Breskum þingmönnum er skylt að gera grein fyrir framlögum sem eru hærri en fimm hundruð pund, allt að ári áður en þeir ná kjöri. Þær kröfur eru þó ekki gerðar til frambjóðenda sem ná ekki kjöri. Farage náði fyrst kjöri til breska þingsins árið 2024. Farage sagði í yfirlýsingu um helgina að hann hefði ekki gert neitt rangt og að hann íhugaði að stefna Sunday Times vegna umfjöllunarinnar. Hann væri fórnarlamb árásar „ráðandi afla“. Segja lýðræðið ekki til sölu Ríkisstjórn Verkmannaflokksins er sögð ætla að herða reglur um framlög til stjórnmálamanna. Frambjóðendum til þings verður í fyrsta skipti gert að gera grein fyrir framlögum sem þeir þiggja og framlög frá skúffufyrirtækjum og erlendum aðilum verða tekin fastari tökum, að því er segir í umfjöllun The Guardian. „Breskt lýðræði er ekki til sölu. Þessar hertu reglur stöðva vafasöm framlög, koma í veg fyrir að erlent fjármagn hafi áhrif á kosningar hjá okkur og halda lýðræðinu sterku,“ sagði Steve Reed, sveitarstjórnaráðherra. Robert Jenrick, þingmaður Umbótaflokksins, varði gjafirnar sem Farage þáði í viðtali við breska ríkisútvarpið um helgina. Þær hefðu verið persónulegar gjafir sem Farage þáði áður en hann varð þingmaður og honum hefði þannig ekki verið skylt að gera grein fyrir þeim. Sunday Times bar brigður á að um persónulegar gjafir hefði verið að ræða. Vísbendingar væru um að Cottrell hefði unnið fyrir Umbótaflokkinn. Þannig hefði hann verið með nafnspjöld með merki flokksins og tölvupóstfangi Farage sjálfs. Cottrell var sakfelldur fyrir rafmyntapeningaþvætti og afplánaði fangelsisdóm í Arizona í Bandaríkjunum. Hann er nú sagður falast eftir náðun frá Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Bretland Kosningar í Bretlandi Rafmyntir og sýndareignir Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira