Bara einn í flugvélinni heim af HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. júlí 2026 07:02 Brasilíumaðurinn Danilo Luiz da Silva eftir tapleikinn á móti Norðmönnum um síðustu helgi. Hann var sá eini í liðinu sem skilaði sér strax heim til Brasilíu. Getty/Tom Weller/ Brasilíumenn eru úr leik á HM eftir tap á móti Norðmönnum í sextán liða úrslitunum og það var ekki mikill áhugi hjá leikmönnum liðsins að fljúga aftur heim til Brasilíu.
Flugvél brasilíska knattspyrnusambandsins flaug heim eftir tapið gegn Noregi. Það er óhætt að segja að varnarmaðurinn Danilo Luiz da Silva hafi haft nægt fótapláss. Hann var nefnilega eini brasilíski landsliðsleikmaðurinn um borð í vélinni. Í gær, þriðjudag, lenti flugvél brasilíska knattspyrnusambandsins í Rio de Janeiro. Hún flaug frá New Jersey eftir að Brasilía féll úr leik gegn Noregi í 16-liða úrslitum nokkrum dögum áður. Farangurinn var léttur. Eini leikmaðurinn í hópi Carlo Ancelotti sem tók sér sæti var hinn 34 ára gamli Danilo, að því er brasilíski vefmiðillinn Metrópoles greinir frá. Fyrrverandi varnarmaður Real Madrid, Juventus og Manchester City fékk þó smá félagsskap. Hluti af starfsliðinu, læknateyminu og sjúkraliðum fór einnig um borð. Brasilíski hópurinn valdi aðrar ferðaleiðir eftir að liðið féll úr leik á HM. Carlo Ancelotti er sagður hafa ferðast beint frá New Jersey til Vancouver í Kanada. Ítalski þjálfarinn er kvæntur kanadískri konu og á parið hús í Vancouver. Hinir leikmennirnir eru sagðir hafa farið beint í frí. Neymar er sagður hafa farið með fjölskyldu sinni til Orlando, Endrick hefur sést í New Jersey og Vinicius Junior flaug til Ibiza, samkvæmt The Sun. Neymar skoraði eina mark Brasilíu í 1–2 tapinu gegn Noregi.
HM 2026 í fótbolta Brasilía Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Sjá meira