Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júlí 2026 07:03 Gabriel Muresan var margfaldur meistari í heimalandi sínu og spilaði fyrir rúmenska landsliðið í bæði undankeppni HM og undankeppni EM. Getty/Tony Marshall Gabriel Muresan er látinn eftir að hafa drukknað en hann er fyrrverandi rúmenskur landsliðsmaður í knattspyrnu.
Muresan var aðeins 44 ára gamall en hann drukknaði í stöðuvatni í heimalandi sínu. Þetta kom fram í staðbundnum fjölmiðlum á fimmtudag. Rúmenska knattspyrnusambandið hefur staðfest andlátið sem og Knattspyrnusamband Evrópu. Samkvæmt fyrstu fréttum hafði Muresan nýlokið við að fara í gufubað með vinum sínum áður en hann stakk sér í ískalt vatnið. Líklegast er að hinn mikli hitamunur hafi reynst honum banvænn. Aðaltilgátan er sú að hann hafi fengið skyndilegt hjartaáfall af völdum hitasjokks. Hópurinn tók ekki eftir fjarveru hans fyrr en klukkustund síðar og lét lögregluna vita um klukkan 23. Þrátt fyrir aðstoð slökkviliðs og kafara fannst líkið ekki fyrr en klukkan eitt um nóttina og tilraunir til endurlífgunar á bráðamóttökunni í Targu Mureș báru engan árangur. Yfirvöld hafa hafið rannsókn en útiloka aðkomu þriðja aðila. On behalf of the European football community, we are saddened by the passing of former Romania international Gabriel Mureșan at the age of 44.Mureșan earned nine caps for his country and captained CFR Cluj, winning three league titles during a successful six-year spell with the… pic.twitter.com/ymrA9cws8g— UEFA (@UEFA) July 9, 2026 „Við sendum fjölskyldu, vinum og öllum sem þekktu Gabriel Muresan okkar innilegustu samúðarkveðjur,“ segir í yfirlýsingu. Á ferli sínum spilaði Muresan á miðjunni og lék níu landsleiki fyrir Rúmeníu. Hann tók þátt í undankeppni bæði fyrir EM og HM á árunum 2007 til 2011. Sigursælasta tímabil hans með félagsliði var með Cluj, þar sem hann varð rúmenskur meistari þrisvar sinnum (2008, 2010 og 2012). Muresan tók þátt í þremur riðlakeppnum í Meistaradeildinni og spilaði meðal annars leiki gegn Chelsea, Manchester United og Roma. Síðustu ár var Muresan bæjarstjóri í sveitarfélaginu Apold. Drukknunarslysið mun hafa átt sér stað í nágrenni við heimili hans. Urząd Miasta Apold poinformował o śmierci swojego burmistrza i zarazem byłego piłkarza Gabiego Muresana w wieku 44 lat. Mężczyzna utonął w jeziorze obok Saes położonym przy drodze do Apold. Do tonącego mężczyzny w środę wieczorem zostały wezwane różnego rodzaju służby. Po… pic.twitter.com/1ootDuARno— Pablo (@PawelPablo39) July 9, 2026
Rúmenía Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti Fleiri fréttir Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Sjá meira