Það er alltaf til byssa. Vertu blómið! Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 10. júlí 2026 06:45 Það eru háð fjölmörg stríð út um allan heim, þau bitna verst á börnum, eitt af hverjum fimm börnum í heiminum býr við stríð, á hverjum degi deyja að meðaltali um 17 börn í stríðsátökum á heimsvísu, þetta eru skelfilegar tölur, en við megum ekki líta undan, hvað ef þetta væru okkar börn! Myndum við vilja að heimurinn liti undan? Hugsið ykkur allan fjöldann! Komum saman og mótmælum stríðsátökum í heiminum, komum af stað friðaröldu um allan heim, ef við erum nógu mörg verða þeir að hlusta, það er ekki eftir neinu að bíða, börnin geta ekki beðið endalaust, þau eiga ekki að þurfa að bíða. Hvernig eiga þau að skilja í framtíðinni hvers vegna enginn stóð upp og hjálpaði þeim? Gerum eins og Blómabörnin fyrir framan Pentagon 21. október 1967 þar sem þau stóðu óhrædd fyrir framan alvopnaða hermenn og settu blóm í byssuhlaupin til að mótmæla stríðinu í Víetnam. „There is always a gun. Be the flower.“ Það er alltaf til byssa. Vertu blómið. Vopnakapphlaup Nú er haldinn NATO-fundur og strax berast fréttir af milljarða dollara samningum um hergagnaframleiðslu, enda stór og flottur sýningarsalur sem hernaðariðnaðurinn fékk til að sýna allt það nýjasta í drápstólum, hann sást í fréttum RÚV 7. júlí. Ekki sá ég sal með friðarsinnum eða umhverfissinnum, þeir mótmæltu kannski úti og í hæfilegri fjarlægð til að skemma ekki „GLEÐINA“ Það var engin talsmaður þeirra í frétt RÚV. Nýtt kjarnorkukapphlaup vofir yfir okkur, þjóðir eyða meira í kjarnorkuvopn, eyða mörgum milljörðum í stríðstól til að drepa, til að eyðileggja, nú þegar eru til vopn til að eyðileggja jörðina mörgum sinnum og drepa hvert og eitt okkar, oft á margs konar hryllilegan hátt. Samt þarf meira af orrustuvélum, sprengjum, drónum og öllum hinum stríðstólunum sem fundin hafa verið upp með gróðasjónarmið að leiðarljósi, það má græða á vopnaframleiðslu, hernaðariðnaðurinn veltir stjarnfræðilegum upphæðum. Sjáið þið þörfina fyrir þetta? Ekki geri ég það. Fleiri vopn búa ekki til frið og öryggi. Mannúðaraðstoð skorin niður. Á sama tíma er verið að skera verulega niður fjármuni til mannúðaraðstoðar, Sameinuðu þjóðirnar neyðast til að draga verulega saman neyðaraðstoð, Alþjóðaheilbrigðisstofnunin verður að segja upp starfsfólki og hætta verkefnum og framlög til alþjóðlegrar þróunaraðstoðar hafa minnkað. Þrátt fyrir að 400 milljónir barna búi við fátækt og skort - geti ekki sinnt grunnþörfum - og á hverri klukkustund fæðast 35 börn í heiminum sem flóttamenn. Fæst þessara barna fá menntun, það er líka verið að taka af þeim framtíðina. Þetta eru afleiðingar stríða sem háð eru með vopnum sem sumum finnst peningunum betur varið í að kaupa. Hér er eitthvað mikið að. Aðrar alvarlegar afleiðingar hernaðarbröltsins. Öll þessi framleiðsla á hergögnum er mengandi, flest af þessu er einnota, kannski sem betur fer fyrir okkur en ekki jörðina, kolefnisspor hernaðar er stórt og gengur hratt á takmarkaðar auðlindir jarðar. Ekki bara framleiðslan heldur allt sem banvæn vopnin skemma bæði beint og óbeint: Sjúkrahúsin, skólarnir, íbúðarhúsnæðið sem ekki er byggt þegar vígtólin eru sett í forgang; öll matvælaframleiðslan sem misferst eða liggur niðri sem veldur hungri hjá ótölulegum fjölda jarðarbúa. Skemmdir á orkumannvirkjum og olíuhreinsistöðvum eru annað og meira en skemmdir á mannvirkjum, þykkur svartur baneitraður reykurinn segir sitt um mengunina. Jafnvel kjarnorkuver eru í hættu svo ofan á það kemur öll mengunin sem stríðstólin valda með bruna á eldsneyti, þau eru ekki keyrð á rafmagni. Hvar eru umhverfissinnarnir núna? Af hverju er enginn að mótmæla þessu? Á sama tíma er verið að segja upp loftslagssamningum og skera niður í fjárlögum framlög til umhverfismála og rannsókna. Það þarf að spara þar líka því það þarf meiri pening fyrir nýjum og öflugri vopnum. Saga til að læra af Það hafa verið háð mörg hryllileg stríð og margt ljótt hefur átt sér stað. Bandaríski herinn notaði yfir 400 þúsund tonn af napalmi í Víetnamstríðinu. Fyrri og seinni heimsstyrjaldirnar, Helförin! Bandaríkin vörpuðu fyrstu kjarnorkusprengjunni á Hiroshima 6. ágúst 1945 og annarri á Nagasaki 9. ágúst. Kóreustríðið, Kambódía, og þannig mætti lengi telja. Þarna átti sér stað hryllingur sem fæst okkar getum ímyndað okkur og langar kannski ekkert til þess. Öll þessi stríð kostuðu gríðarlegt mannfall og kölluðu hörmungar yfir fólk, já, bara venjulegt fólk eins og þig og mig. Oft afsakaði fólk sig með því að það vissi ekki af þessu og oftast var það rétt en næstum allir voru sammála um að þetta mætti aldrei gerast aftur, alltaf gott að vera vitur eftir á. En hvar er það vit núna? Við virðumst ekkert hafa lært af sögunni, í dag geisa stríð út um allan heim og núna getum við ekki afsakað okkur með því að við vitum ekkert því þetta er nánast í beinni útsendingu. Friðarveggur úr Ást og Blómum Tökum saman höndum og stoppum þetta, við getum allt ef við erum nógu mörg, börnin eiga það inni hjá okkur, þetta eru líka okkar börn, gleymum því ekki. Látum boðskapinn ganga og hrindum þessu í framkvæmd, það er ekki eftir neinu að bíða, komum saman og stöndum þétt, myndum varnarvegg, friðarvegg. Segum hátt, Svo það heyrist, Við viljum frið – Ekki í okkar nafni – Stoppið stríðsátökin! Heimildir Það má lesa um þetta á helstu fréttamiðlum og hjá Barnaheill, Save the children, Unicef, UN Women Ísland, Rauða krossinum, Amnesty og fleiri stöðum. Þar eru staðreyndir sem eru sárari en tárum tekur og þau féllu mörg tárin við leit að efni í þessa grein og hinar þrjár sem ég hef skrifað um frið.. Tölum hátt og stolt um frið. Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást. Höfum við efni á þessu Stríðsbrölti?. Höfundur er í Samtökum Hernaðarandstæðinga og langamma Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmunda G. Guðmundsdóttir Mest lesið Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun