„Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Andri Broddason skrifar 10. júlí 2026 12:31 Viktor Gísli Hallgrímsson er ánægður hjá Barcelona enda vann liðið Meistaradeild Evrópu. Sigurjón/Vísir Viktor Gísli Hallgrímsson var að klára sitt fyrsta tímabil hjá Barcelona en liðið gerði sér lítið fyrir og vann Meistaradeild Evrópu í handbolta. Viktor Gísli er ánægður hjá Barcelona en var ekki endilega að búast við að vinna Meistaradeildina á sínu fyrsta tímabili. „
Maður vonast alltaf til þess, svo þegar leið á tímabilið töpuðum við bara einum leik og þá var maður búinn að búa til væntingar. Við spiluðum vel á móti Magdeburg sem er mjög gott próf til að sjá hvernig liðið stendur. Eftir þann leik þá hugsaði maður að við eigum séns á að vinna Meistaradeildina og við náðum því, sem er geggjað.“ Viktor Gísli hefur komið sér vel fyrir í Barcelona þar sem mikið líf er í borginni. Í mörgum handboltabæjum er lítið um að vera og því er hann feginn að búa í Barcelona. „Það er gott að kærastan mín hafi eitthvað að gera. Það er ekki mikið af handboltabæjum með mikið félagslíf og mikið um að vera. Hún er mjög ánægð með það sem gerir líf mitt léttara.“ Samherji Viktors Gísla í marki Barcelona er Emil Nielsen sem er af mörgum talinn besti markmaður heims. Hann var valinn mikilvægasti leikmaður Meistaradeildar Evrópu og gott að eiga góðan liðsfélaga sem maður getur lært mikið af. „Við vorum herbergisfélagar og tölum báðir dönsku þannig að við urðum góðir félagar. Ég lærði mikið af því að horfa á hann á hverjum degi og sérstaklega hvernig hann nær að kveikja á sér í hverjum einasta leik. Það voru kannski tveir leikir á öllu tímabilinu þar sem hann var ekki alveg upp á sitt besta en í stóru leikjunum stóð hann sig alltaf vel og það er eitthvað sem maður verður að læra af honum.“ Það getur verið erfitt að deila markmannsstöðunni með besta markmanni heims og hefur Viktor Gísli fengið að kynnast því. „Ég var einu sinni að hita upp og hélt að ég væri að fara að koma inn á. Þá varði Nielsen þrjú skot í röð og ég þurfti bara að setjast aftur niður.“
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Spænski handboltinn Íslendingar erlendis Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira