Erlent

Dermot Murnaghan er látinn

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Murnaghan var aðalfréttaþulur Sky News í 15 ár, til ársins 2023.
Murnaghan var aðalfréttaþulur Sky News í 15 ár, til ársins 2023. Getty

Dermot Murnaghan, fyrrverandi sjónvarpsþulur og sjónvarpskynnir Sky News, er látinn 68 ára að aldri. 

Sky News greinir frá og vísar í tilkynningu frá fjölskyldu Murnaghan en þar segir að hann hafi látist á heimili sínu í norðurhluta London í morgun en hann hafði glímt við krabbamein í blöðruhálskirtli frá því hann greindist árið 2024. 

Murnaghan var aðalfréttaþulur Sky News í 15 ár, til ársins 2023. Þar áður kynnti hann fréttir fyrir Channel 4, ITV og BBC og var einnig þekktur fyrir að stjórna spurningaþættinum Eggheads. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×