Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 12. júlí 2026 18:00 Jón Pétur Zimsen mætir galvaskur til leiks í svargrein sinni til mín á Vísi og telur sig hafa fundið endanlega sönnun þess að Evrópusambandið sé skaðlegt regluverkabákn. Tilefnið er hugsanlegt afnám tollfrelsis á smápökkum undir 150 evrum (s.s. ef við hugsanlega kannski göngum í ESB), sem á að sporna gegn risum eins og Temu og Shein. Í hans augum er þetta dæmi um hvernig „Brussel-báknið“ ætli að eyðileggja frelsi íslenskra neytenda til að kaupa ódýran varning, sem mörg okkar myndu stundum kalla drasl. Það er athyglisvert að Jón Pétur Zimsen velji að verja þessar vörur og þau áhrif sem það hefur á rekstur verslana í landinu og ekki sé talað um neytendur sem sitja uppi með vörur sem standast oft ekki nútíma kröfur. En ef við stígum út úr einföldunum og skoðum raunveruleikann, þá sýnir þetta dæmi nákvæmlega fram á hið gagnstæða: Það sýnir hvernig nútímaleg ríkjasamvinna grípur inn í til að vernda neytendur, umhverfið og innlent atvinnulíf. Vörn gegn undirboðum og umhverfisáhrifum Afnám tollfrelsis á Temu-pökkum snýst ekki um einræði heldur um að vernda innlenda og evrópska verslun gagnvart gríðarlegum undirboðum frá ríkisstyrktum asískum risum. Þessi fyrirtæki starfa oft utan þeirra ströngu krafna sem við gerum til umhverfissjónarmiða, vinnuverndar og vörugæða. Að krefjast þess að þessar vörur beri eðlilega gjöld er einfaldlega krafa um jafna og sanngjarna samkeppnisstöðu. Íslensk verslun, sem borgar hér skatta, útsvar og tryggir fólki vinnu, getur aldrei keppt við kerfi sem fær ókeypis passa fram hjá tollakerfinu. Tollakerfið á nefnilega m.a. að vernda staðbundna verðmætasköpun og koma í veg fyrir að t.a.m. markaðurinn fyllist af óvottuðu ódýru plasti, sem mörg okkar myndu stundum kalla drasl. Herbrölt og óvissa í breyttum heimi Það vekur líka athygli í grein Jóns Péturs Zimsen er hvernig honum tekst að flétta alþjóðlegu tollasamstarfi saman við herbrölt og öryggismál. Hann dregur varnarsamning okkar við Bandaríkin inn í umræðuna og fullyrðir, nánast eins og hlutlæga staðreynd, að honum verði „vafalaust“ breytt eða hann lagður af ef við göngum í ESB. Þessi málflutningur jaðrar við hálfgerða áráttu. Evrópusambandið er fyrst og fremst efnahags- og stjórnmálasamband, en ekki hernaðarbandalag. Flest ríki ESB byggja sínar varnir á NATO-samstarfinu, eins og við, og enginn er að rífa upp gildandi varnarsamninga. En ef Jón Pétur Zimsen vill endilega ræða öryggismál í þessu samhengi, þá er lágmark að horfa á veruleikann eins og hann blasir við í dag. Í breyttum heimi þar sem Donald Trump og stjórn hans í Washington valda stöðugri óvissu á alþjóðavettvangi, er hálfpartinn hjákátlegt að mæla með því að við treystum nánast einvörðungu á Bandaríkin sem okkar eina félaga í vörnum landsins. Varnarsamningurinn er auðvitað til staðar, en mitt í svona ófyrirsjáanlegu landslagi er það beinlínis skynsamlegt að styrkja líka tengslin og samstarfið við okkar nánustu nágranna í Evrópu. „ Örfá tollnúmer“ og ótrúlegar samsæriskenningar Jón Pétur Zimsen reynir einnig að gera lítið úr áhrifum ESB-aðildar á matarkörfuna og heldur því fram að þar sé aðeins um að ræða „örfá tollnúmer“ sem nánast engu máli skipti. Það er hálf ótrúlegt að lesa svona málflutning í landi þar sem matvælaverð er með því hæsta sem gerist í siðmenntuðum heimi. Full aðild þýðir afnám landbúnaðartolla á evrópskar vörur, sem myndi gerbreyta samkeppni, auka vöruúrval og lækka verð á matarkörfu almennings, það snýst um miklu meira en einhver tæknileg tollnúmer á blaði og þá erum við ekki einusinni byrjuð að ræða lækkað vaxtastig og aðra mögulega hagsmuni innan ESB. En toppnum nær hann þó þegar hann dregur upp samsæriskenningu um verðbólguna á Íslandi. Hann lætur að því liggja að stjórnvöld séu viljandi að halda uppi hárri verðbólgu og stýrivöxtum hér heima til þess eins að hræða þjóðina til að kalla eftir björgun frá ESB. Ætli Donald Trump og stríðsbröltið hans gagnvart Íran, sem hefur átt töluverðan þátt í að drífa upp heimsmarkaðsverð á olíu og kynda undir verðbólgu síðustu mánaða, séu þá líka með í þessu leynilega samsæri íslenskra stjórnvalda? Að halda því fram að efnahagsstjórn landsins sé fórnað í einhverju leynilegu Brussel-baktjaldamakki er álíka fjarstæðukennt og það að Jón Pétur Zimsen velji að draga það, að því er virðist hugsunarlaust, úr lausu lofti. Aðlögunarferlið: Sögurnar um að við fáum ekkert að segja Að lokum tyggur Jón Pétur upp hina klassísku mýtu andstæðinga ESB: að viðræður séu í raun bara „aðlögunarferli“ þar sem við neyðumst til að gleypa allt hrátt og fáum ekkert um hlutina að segja. Þetta er beinlínis útúrsnúningur á lýðræðislegu ferli. Viðræður snúast um að fara yfir hvar hagsmunir okkar liggja, finna sérlausnir og undanþágur og semja um hvernig Ísland getur tekið þátt í samstarfinu á eigin forsendum. Og hver á lokaorðið? Það gerir íslenska þjóðin í þjóðaratkvæðagreiðslu. Enginn getur neytt okkur inn, og enginn getur þvingað okkur til að samþykkja neitt sem við viljum ekki. Raunverulegt fullveldi snýst um lýðræðislegt sjálfstraust Að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi, fella niður almenna tolla á milli næstu nágranna okkar og standa vörð um sanngjarna viðskiptahætti er ekki fullveldismissir. Það er skynsamlegt. Með því að klára viðræðurnar við ESB fáum við loksins að sjá samninginn svart á hvítu. Þá getum við tekið upplýsta ákvörðun: Viljum við áfram standa úti í kuldanum og láta hræða okkur með sögum um glataða varnarsamninga, samsæri um verðbólgu og herbrölt, kryddað því að verja innflutning á ódýrum vörum frá Kína með þann kostnað sem það hefur í för með sér fyrir innlenda verslun og framleiðslu? Eða, eigum við að sýna það lýðræðislega sjálfstraust að mæta til leiks og hafa áhrif á þær reglur sem gilda í okkar eigin heimsálfu? Klárum viðræðurnar. Sjáum samninginn. Hættum að láta elda í okkur hræðslugraut byggða á samsæriskenningum á meðan heimurinn heldur áfram að þróast. Höfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann svo og sérlegur áhugamaður um Já við ESB-viðræðum . Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir Skoðun