Miklir skógareldar nærri París Áróra L Davíðsdóttir skrifar 13. júlí 2026 07:29 Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty Tvær slökkviflugvélar voru sendar með hraði til að berjast við gróðurelda sem kviknuðu í Fontainebleau-skógi, 60 kílómetra suðaustan við Parísarborg.
Yfirvöld í Frakklandi segja eldinn hafa breiðst hratt út og nái þegar yfir átta hundruð hektara svæði. Auk tveggja slökkviflugvéla hafi tvær þyrlur og könnunarflugvél verið sendar á vettvang. Le Monde og AFP segja hinn víðfeðma Fontainebleau-skóg vera þéttsetinn þorpum. Fimmtán heimili í þorpinu Vaudoue hafi verið rýmd í gær en eldurinn sé „illvígur“ og af „fordæmalausri stærðargráðu.“ Rýma hefði þurft fleiri þorp hefðu slökkviflugvélarnar ekki verið sendar á svæðið er haft eftir aðgerðarstjóra slökkvistarfsins. Þetta sé í fyrsta sinn sem slíkar vélar hafi verið sendar á Parísarsvæðið en þær sinni yfirleitt slökkvistörfum í suðurhluta landsins, þar sem loftslag er að jafnan þurrara og hlýrra, segir talsmaður landssambands slökkviliðsmanna í Frakklandi. Einni stærstu hraðbraut Frakklands hafi verið lokað frá norðri til suðurs í gær og mikil truflun hafi orðið umferð og samgöngum. Miklar seinkanir urðu á lestum til og frá Gare de Lyon- lestarstöðinni í París. Stórir hlutar Frakklands, þar á meðal höfuðborgin París, glími nú við þriðju hitabylgjuna síðan í maí, sem stórauki hættuna á eldsvoðum.
Frakkland Hitabylgja í Evrópu sumarið 2026 Gróðureldar Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Erlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira