Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Bjarki Sigurðsson skrifar 3. september 2026 21:02 Haraldur Þór Egilsson er safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri. Vísir/Bjarki Hernámsins á Akureyri á tímum síðari heimsstyrjaldar er minnst með nýrri sýningu Minjasafns bæjarins. Forsvarsmenn sýningarinnar þurftu að vera frumlegir við uppsetninguna þar sem margar minjar höfðu glatast.
Breskir hermenn sáust fyrst á Akureyri 17. maí 1940, viku eftir hernám Reykjavíkur. Um borð voru fjörutíu sjóveikir hermenn sem hertóku fjörðinn. Þúsundir hermanna áttu eftir að mæta þangað á næstu mánuðum þar sem þeir reistu herbúðir, drógu varnarlínu um Hrísey, lögðu tundurdufl í sjó og fleira. Sýningin Í hers höndum gefur fólki innsýn í þessa tíma og er byggð á ljósmyndum, kvikmyndum og samtímasögum hermanna og heimafólks. Minjar frá þessum tíma hafa margar hverjar glatast. „Það er ekki mikið sem verður eftir sem hefur í það minnsta ratað á íslensk söfn. Við þurftum að vera skapandi við að finna hluti til að sýna og gera skemmtilega sýningu,“ segir Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins á Akureyri. Klippa: Margar minjar höfðu glatast Fastagestur á safninu lagði sitt af mörkum á lokametrunum. Hann var ungur strákur á hernámsárunum og hafði sögu að segja. „Hann var að skottast á Eyrinni milli tjalda, þá fær hann bendingu frá einum hermanni sem dregur upp myndavél og tekur af honum ljósmynd. Ekkert mál með það. Svo nokkrum dögum síðar þegar strákurinn er á leið heim úr skólanum og fer í gegnum miðbæinn keyrir fram hjá hersveit á mótorhjólum. Einn þeirra stöðvar hjólið og gengur til stráksins. Hann fer í brjóstvasann og réttir honum myndina sem hann hafði tekið. Þessi mynd barst til okkar rétt fyrir sýningarbyrjun,“ segir Haraldur. Hér fyrir neðan má sjá myndina sem hafði varðveist öll þessi ár. Myndin er til sýnis á safninu.Minjasafnið á Akureyri
Akureyri Söfn Mest lesið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Ólétt 52 ára Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Fleiri fréttir Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Sjá meira