„Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. júlí 2026 08:31 Brynjar Karl ákvað að draga lið Aþenu úr leik í Bónus deild kvenna. vísir / ívar Körfuboltafélagið Aþena mun ekki senda lið til keppni í Bónus deild kvenna á næsta tímabili. Stofnandi félagsins og þjálfari liðsins, Brynjar Karl Sigurðsson, segir ábyrgðina liggja hjá Reykjavíkurborg. Alvarlegast af öllu sé þó að sjá framtíð yngri flokka starfsins í uppnámi.
Brynjar Karl tilkynnti um ákvörðunina á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi og lýsti þar áralangri baráttu félagsins við Reykjavíkurborg. Nú sé rekstrarsamningur borgarinnar um starfsemi Aþenu í Austurbergi í Breiðholti að renna út og engin svör fáist um framhaldið. „Borgin er bara að draga þetta og draga þetta og draga þetta, að gefa okkur svör. En ég held að ástæðan fyrir því að við fáum ekki svarið sé að það yrði svo gróft. Þannig að það er bara verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp, og það er bara dálítið komið að því núna. Við erum ábyrgir aðilar sem ætlum að gefa þessari úrvalsdeild tækifæri til að fylla í skarðið. Í staðinn fyrir að draga þau inn í óvissuna og þurfa svo að skilja eftir skarð í úrvalsdeildinni. Við berum meiri virðingu fyrir kvennakörfunni en það.“ Í lok maímánaðar, fyrir um fimm vikum síðan, tók nýr meirihluti við taumunum í borgarstjórn Reykjavíkur. Brynjar var því spurður hvernig samskipti við nýju borgarstjórnina hefðu verið. „Ég er orðinn leiður á að tala um samskipti, hvernig þau eru og allt þetta. Ég vil bara tala um kjarna málsins: Það er enginn samningur við Aþenu. Ég kann ákaflega vel við mjög marga sem við höfum talað við, það hafa verið mjög margir góðir fundir, það brosa allir á fundum, það lofa allir öllu fögru á öllum fundum, en staðan er bara þessi. Samningurinn er til, það hefði ekki verið neitt mál að virkja hann, sérstaklega í ljósi þess að við sendum út neyðarkall fyrir fimm vikum síðan.“ Í ljósi þessarar ákvörðunar, að draga meistaraflokk Aþenu úr keppni í Bónus deild kvenna, hvað ber framtíðin í skauti sér fyrir félagið? „Þetta er fyrsta skrefið. Og þetta er mjög þungt. Það er í sjálfu sér mjög alvarlegt að lið sé dregið úr úrvalsdeild en það sem er enn alvarlegra er það að stelpurnar í liðinu eru þær sem bera uppi þjálfunina. Þetta eru stelpurnar sem byrjuðu þetta, þær eru orðnar mjög færar og þær hafa unnið sér inn mikið traust hjá krökkunum. Að það skuli vera sett í uppnám, það er lang alvarlegasta dæmið.“ Brynjar Karl ræddi niðurlög Aþenu í Sportpakka Sýnar í gærkvöld. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan.
Bónus-deild kvenna Aþena Reykjavík Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Frakkland - Spánn | Sæti í úrslitaleiknum undir Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti Sjá meira