Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Jón Þór Stefánsson skrifar 14. júlí 2026 13:19 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Tvímenningar, afi og barnabarn hans, voru á dögunum sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um peningafals í banka í Kópavogi í júlí í fyrra.
Þeim var gefið að sök að láta úti fjóra falsaða 100 Bandaríkjadalaseðlum, eða samtals 400 Bandaríkjadali, sem þeir annað hvort vissu eða grunaði að væru falsaðir. Það hafi þeir gert í því skyni að skipta fölsuðu seðlunum yfir í annan gjaldmiðil. Haft er eftir rannsóknarlögreglumanni, í niðurstöðukafla dómsins að ekki sé „um falsaða peninga að ræða heldur gervipeninga sem algengt sé að brenna í Kína.“ Svo virðist sem afinn og barnabarnið hafi ekki verið grunaðir um að standa að peningafölsun, heldur sé hægt að kaupa peninga eins og þá sem þeir voru með í verslunum í Kína og annars staðar í Asíu. Eins og Matador Haft er eftir bankastarfsmanni með tuttugu ára reynslu að hún hafi strax áttað sig á því að þarna væru ekki alvöru peningar á ferð, þeir hafi minnt á Matador-peninga, augljóslega falsaðir. Í dómnum kemur fram að málið hafi verið rannsakað nokkru eftir að það kom upp. Lögregla hafi því ekki getað ráðist í ýmsar rannsóknaraðgerðir, líkt og húsleit, eða skoðað rafræn gögn. Varð þetta til þess að barnabarnið var einn til frásagnar um hvernig hann fékk peningana í sínar hendur. Um var að ræða gervi-Bandaríkjadali.Getty Með ólíkindum en ekki fráleitt Barnabarnið sagði fyrir dómi að hann hafi fundið seðlana í veski á bekk utandyra, daginn áður en hann fór með afa sínum í bankann. Að mati dómsins er sú skýring með nokkrum ólíkindum, en þó alls ekki fráleit. Þó þótti dómnum framburður barnabarnsins trúverðugur um að hann hefði ekki fengið afa sinn með sér í bankann hafi hann grunað að peningarnir væru falsaðir. Auk þess þótti það auka trúverðugleika hans að hann hafi farið að skipta peningum í banka, en ekki reynt það á til dæmis veitingastöðum þar sem ekki er sama eftirlit með því hvort peningar séu ekta eða ekki. Ákæruvaldinu tókst ekki að sanna yfir skynsamlegan vafa að sakborningarnir hafi vitað eða grunað að peningarnir væru falsaðir. Þeir voru því sýknaðir, en seðlarnir þó gerðir upptækir. Málsvarnarlaun mun greiðast úr ríkissjóði.
Dómsmál Kópavogur Fjármálafyrirtæki Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira