Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Sindri Sverrisson skrifar 15. júlí 2026 08:32 Sveinbjörn Óli Svavarsson og Murielle Tiernan voru í brúðkaupi hjá bróður Murielle á dögunum og nú styttist í að þau gangi einnig í það heilaga. @mtiernan13 Gærkvöldið var heldur betur eftirminnilegt fyrir Murielle Tiernan, framherja Stjörnunnar, því eftir að hafa unnið 3-2 sigur gegn Þór/KA í Garðabænum fékk hún bónorð á vellinum.
Murielle mætti því með trúlofunarhring í viðtal við Fótbolta.net eftir leikinn. Hún varð heldur betur hissa þegar kærasti hennar, Sveinbjörn Óli Svavarsson frjálsíþróttakappi úr Skagafirði, mætti inn á Samsung-völlinn og bað hana að giftast sér. „Allir í kringum mig segja að ég hefði átt að átta mig á þessu en ég gerði það ekki. Þannig að já, þetta var mjög gott,“ sagði Murielle himinlifandi í viðtalinu við Fótbolta.net. Murielle er 31 árs gömul Bandaríkjakona sem sett hefur sterkan svip á íslenska boltann í gegnum árin. Hún lék fyrst á Íslandi árið 2018 og skoraði þá 24 mörk í 14 leikjum fyrir Tindastól, þegar liðið komst upp úr 2. deild. Hún hélt áfram að raða inn mörkum í Lengjudeildinni og átti ríkan þátt í að koma Tindastóli upp í efstu deild í fyrsta sinn, haustið 2020. Murielle lék tvö tímabil í efstu deild með Tindastóli, með árs hléi í Lengjudeildinni, en skipti yfir í Fram fyrir sumarið 2024 og elti svo þjálfarann Óskar Smára Haraldsson til Stjörnunnar fyrir yfirstandandi tímabil. Hún skoraði 11 mörk í Bestu deildinni fyrir Fram í fyrra en meiðsli hafa sett strik í reikninginn í ár og var Murielle að snúa til baka úr þeim í gærkvöld svo segja má að kvöldið hafi verið fullkomið.
Besta deild kvenna Stjarnan Mest lesið Biðst afsökunar og afsalar sér sigrinum Sport Varð skotmark með því að ráða Frey: „Ákveðin áhætta fyrir mig“ Fótbolti Mun saga Arons endurtaka sig? Fótbolti Seldur frá Keflavík til Sýrlands Íslenski boltinn „Eins og að horfa á bíómynd“ Sport Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Enski boltinn Heimir ræddi við hvern einasta leikmann um leikina við Ísraela Fótbolti „Setjum pressu á leikmenn að haga sér fullkomlega næstu tvö árin“ Fótbolti „Ef þetta hefði verið ég þá hefði ég hætt keppni“ Sport Fleiri fréttir Breiðablik - Grindavík/Njarðvík | Titilbaráttan hefst fyrir alvöru „Hversu mikil pressa var á honum?“ Sjáum til hvort þetta verði algjör þvæla Seldur frá Keflavík til Sýrlands „Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Haukar og Selfoss leika til úrslita Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Sjáðu sturlað mark Tómasar, rassamark Vals og tvennur Galdurs og Benedikts Slagsmál á æfingu trufluðu ekki: „Litlar stimpingar með stórum afleiðingum“ Fámáll um orðrómana „Þetta er bara svo ógeðslega dýrt“ „Allir orðnir vinir í skóginum“ „Draumur að fá að spila á landsliðsvellinum“ Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Þróttur tryggði sig í úrslitaleikinn „Mótið í rauninni búið“ „Við komum svo voða skrítnir inn í seinni hálfleikinn“ „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ „Fannst dómarinn missa svolítið tökin á leiknum” Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-0 | Warén jók á áhyggjur Eyjamanna Uppgjörið: KR - ÍA 5-1 | Markahæstir í sögunni Sjá meira