Veita helmingsafslátt af leigunni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. júlí 2026 12:48 Klambratún er borgarland. Vísir/Vilhelm Breyting á gjaldskrá afnotaleyfa og eftirlits hjá Reykjavíkurborg hefur tekið gildi sem felur í sér heimild til að veita afslátt af gjöldum vegna ákveðinna viðburða á borgarlandi.
Lagt var til á fundi borgarráðs 2. júlí að breytingar yrðu gerðar á gjaldskrá afnotaleyfa vegna viðburða í borgarlandi á þann hátt að heimilt verður að veita allt að fimmtíu prósenta afslátt af afnotaleyfi þegar óhagnaðardriifn félög halda viðburði. Þá verður gjald fyrir viðburði sem teljast litlir eða minniháttar gjaldfrjálst þar sem þeir hafa óveruleg áhrif á borgarlandið. Breytingin var lögð til, og samþykkt, til að koma til móts við viðburðahaldara í borginni. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að breytingin hafi tekið gildi. Í uppfærðri gjaldskrá kosta viðburði sem krefjast talsverðs utanumhalds 285.100 krónur og þeir sem teljast verulegs utanumhalds 594.700 krónur. Núna geta óhagnaðardrifin félög, svo sem íþróttafélög, og þeir viðburðir sem eru opnir öllum almenningi greitt helmingi minna. „Forsenda þess að afsláttur verði veittur er að fyrir liggi samkomulag um eftirlit, frágang og viðbrögð af hálfu viðburðahaldara. Markmið með þessum breytingum er að draga úr þörf fyrir eftirlit af hálfu leyfisveitenda og tryggja að afnot borgarlands fari fram með öruggum og ábyrgum hætti,“ segir í tilkynningu borgarinnar. „Afnotaleyfi veita tímabundna heimild til að nota borgarland fyrir margvísleg verkefni, svo sem viðburði, framkvæmdir eða rof á yfirborði. Markmið leyfanna er að tryggja öryggi vegfarenda, upplýsa íbúa og gesti um afnotin og stuðla að góðri umgengni um borgarlandið. Jafnframt er afnotaleyfum ætlað að vernda verðmæti eigna Reykjavíkurborgar með því að koma í veg fyrir óþarfa slit eða skemmdir á yfirborði og undirlagi sem geta rýrt gæði og verðmæti borgarumhverfisins.“
Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Fleiri fréttir „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Sjá meira