Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Jakob Bjarnar skrifar 16. júlí 2026 07:03 Fjölskyldan hefur unað hag sínum vel á Íslandi en nú er þau eru nú að spá í að flytjast aftur til Póllands, á einhverjum tímapunkti verði það hagstæðara. aðsend Krzysztof Jerzy og kona hans Magdalena Bartczak frá Póllandi eru að missa íbúð sína í þriðja skipti á tveimur árum. Krzysztof lýsir húsnæðismarkaði í Reykjavík sem rússíbana. „
Enn á ný erum við að leita okkur að húsnæði. Búið er að selja íbúðina sem við höfum verið í að undanförnu og við þurfum því að finna nýja,“ segir Krzysztof. Eru í betri aðstöðu en gerist og gengur Krysztof og Magdalena eiga tvö börn. Dóttir þeirra hefur lokið öðru ári í Ísaksskóla og yngri bróðir hennar er á leikskólanum Grænuborg, sem er við Hallgrímskirkju. „Ég efast um að aðstæður okkar séu dæmigerðar fyrir útlendinga sem eru að leita sér að íbúð á Íslandi. Kona mín kennir pilates í Kramhúsinu, hefur gert núna í átta ár og því höfum við „íslensk sambönd“ sem fæstir útlendingar hafa. Það er mun auðveldara fyrir okkur að finna íbúð og yfirleitt fáum við ágæt boð um húsnæði. Oft íbúðir sem eru ekki einu sinni á markaðinum,“ segir Krysztof. Jól á Íslandi. Krzysztof Jerzy segir ástandið á húsnæðismarkaði ekki félegt.aðsend En vandinn sem þau eiga við að etja er að íbúðirnar sem þau leigja eru oft seldar meðan þau eru í þeim. Þau eru því einatt á hrakhólum. Eiga marga íslenska vini sem hjálpar „Þetta hefur gerst þrisvar á undanförnum þremur árum. Þá eru margar íbúðir í miðborginni leigðar út sem AirBnB yfir sumartímann. Fólk leigir til níu mánaða eða þar til sumarið kemur. „Svo vinnum við bæði í miðborginni og krakkarnir okkar fara í skóla hér þannig að við getum ekki flutt langt frá. Það væri auðveldara að finna öruggara húsnæði í Kópavogi eða jafnvel enn lengra í burtu. Þannig gengur þetta fyrir sig. Þeim mun lengur sem þú dvelur í Reykjavík þá ýtir húsnæðismarkaðurinn þér frá miðsvæðinu.“ Krysztof segist þó ekki vilja kvarta því þau eigi dásamlega íslenska vini sem ávallt séu reiðubúnir að rétta út hjálparhönd, finna húsnæði og/eða geyma fyrir þau innanstokksmuni þegar svo beri undir. „Ég get ímyndað mér hversu erfitt þetta getur reynst fyrir fólk sem ekki á neina íslenska vini,“ segir Krysztof. Stefna aftur heim til Póllands eftir tvö ár Þau Krysztof og Magdalena hafa nú dvalið á Íslandi í níu ár og hafa á þeim tíma verið í átta íbúðum. Spurður hvort þau ætli að dvelja lengur hérlendis segir Krysztof þau líklega hyggja á brottför til Póllands eftir tvö ár. „Þar ráða fleiri en ein ástæða en sú sem vegur þyngst er að það er stöðugt erfiðara fjárhagslega að vera á Íslandi. Verðbólgan stígur en launin hækka ekki í samræmi við verðhækkanir. Það er erfitt að fá lán og það verður erfiðara og erfiðara að vinna vinnu, og þá meina ég hvaða vinnu sem er. Á einhverju augnabliki er það hreinlega hagstæðara að fara aftur til Póllands.“ Stöðugt erfiðara og erfiðara reynist að finna sér vinnu á Íslandi.aðsend Krysztof starfaði fyrstu fimm árin á Íslandi við markaðssetningu en þegar samningur hans rann út tókst honum ekki að landa sambærilegu starfi, ekki í mánuði. „Að endingu fann ég starf við öryggismál og það var bara vegna þess að vinur minn starfaði þar og hjálpaði mér að fá starfið. Um helstu störf sem auglýst eru á Alfreð eru þrjú til fjögur hundruð umsóknir. Ég hef heyrt talað um, í ýmsum Facebook-hópum, að það sé jafnvel erfitt fyrir menntaða Íslendinga að finna sér störf við hæfi og að þeir séu að sækja um almenn störf.“ Þakklátur fyrir góða íslenska vini Vísir nefnir við Krysztof að hann hafi í fáum orðum lýst hrörnandi efnahagshorfum á Íslandi, betur en flestir en hann leyfir sér að efast um að honum hafi tekist að lýsa breiðu myndinni skilmerkilega. „En samkvæmt minni reynslu þá er erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi.“ Krzysztof vonar að hann hljómi ekki of neikvæður, hann segist afar þakklátur fyrir Ísland og hina íslensku vini sem þau hjón hafi eignast í þau næstum tíu ár sem þau hafa nú dvalið hér. Og það vill hann undirstrika.
Húsnæðismál Reykjavík Innflytjendamál Efnahagsmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira