Körfubolti

Ís­lensku strákarnir í átta liða úr­slitin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Birgir Leó Halldórsson setti niður sex þriggja stiga skot í leiknum í kvöld.
Birgir Leó Halldórsson setti niður sex þriggja stiga skot í leiknum í kvöld. fiba.baskeball

Íslenska tuttugu ára landslið karla í körfubolta tapaði sínum fyrsta leik í B-deild U20 Evrópumótsins í Bratislava í Slóvakíu en tryggði sér engu að síður sæti í átta liða úrslitunum.

Íslenska liðið tapaði með þremur stigum á móti Bosníu, 77-80, í leik þar sem íslensku strákarnir unnu upp tíu stiga forskot Bosníumanna í seinni hálfleik en misstu þá aftur frá sér í lokin.

Ísland var 76-74 yfir þegar tvær mínútur voru eftir en Bosnía vann lokakaflann 6-1.

Bosnía mátti ekki vinna leikinn með meira en níu stiga mun því þá hefðu þeir skilið eftir íslenska liðið í riðlinum.

Ísland hafði unnið fyrstu fjóra leiki sína á mótinu en Ísland, Portúgal og Bosnía enda öll með fjóra sigra og eitt tap. Bosníumenn töpuðu með fimmtán stiga mun á móti Portúgal og sitja því eftir en Portúgal og Ísland fara áfram í átta liða úrslitin.

Viktor Jónas Lúðvíksson var með 25 stig, 12 fráköst og 4 stoðsendingar í leiknum í kvöld en Birgir Leó Halldórsson skoraði líka 25 stig þar af setti hann niður sex þrista. Kristófer Breki Björgvinsson skoraði 12 stig og Lars Erik Bragason var með 6 stig.

Íslenska liðið spilar í átta liða úrslitunum á móti Búlgaríu á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×