Körfubolti

Ís­land á tvo stigahæstu leik­menn mótsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Enginn skoraði fleiri stig í riðlakeppninni en þeir Viktor Jónas Lúðvíksson og Birgir Leó Halldórsson.
Enginn skoraði fleiri stig í riðlakeppninni en þeir Viktor Jónas Lúðvíksson og Birgir Leó Halldórsson. fiba.basketball

Íslenska tuttugu ára landsliðið í körfubolta er komið í átta liða úrslit í B-deild Evrópumóts U20 landsliða og tveir bestu skorararnir í mótinu spila með íslenska liðinu. Mótið fer fram í Bratislava í Slóvakíu.

Íslenska liðið vann fjóra af fimm leikjum sínum fyrir útsláttarkeppni mótsins og Ísland átti tvo stigahæstu leikmenn riðlakeppninnar.

Stjörnumaðurinn Viktor Jónas Lúðvíksson er stighæstur með 20,6 stig að meðaltali í leik og var sá eini sem skoraði meira en tuttugu stig að meðaltali í riðlakeppninni. Viktor hefur nýtt 59,7 prósent skota sinna á mótinu. Viktor er líka í öðru sæti í fráköstum með 14,6 fráköst að meðaltali í leik og efstur í framlagi með 30,0 framlagsstig í leik.

Fjölnismaðurinn Birgir Leó Halldórsson er næsti maður á listanum yfir stigahæstu leikmenn mótsins til þessa því hann var með 18,8 stig að meðaltali í leik í riðlakeppninni. Birgir Leó er búinn að skora 3,8 þrista að meðaltali í leik en hann er með 36,5 prósent nýtingu fyrir utan þriggja stiga línuna.

Max Jungers frá Lúxemborg er síðan í þriðja sæti með 17,8 stig að meðaltali í leik en Daninn Willas Moller hefur skorað 16,8 stig að meðaltali í leik í fyrstu fimm leikjum mótsins.

Íslenska liðið mætir Búlgaríu í átta liða úrslitunum á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×