Innherji

Hækkanir á komu­gjöldum í heil­brigðis­kerfinu munu ýta undir verð­bólgu í ágúst

Hörður Ægisson skrifar
Hækkun gjalda fyrir þjónustu á heilsugæslustöðvum og breytingar á gjaldskrá sjúkraþjálfunar munu „hafa bein áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs í ágústmælingunni,“ að sögn greinenda.
Hækkun gjalda fyrir þjónustu á heilsugæslustöðvum og breytingar á gjaldskrá sjúkraþjálfunar munu „hafa bein áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs í ágústmælingunni,“ að sögn greinenda.

Boðaðar breytingar á verðskrá í heilbrigðiskerfinu, meðal annars tvöföldun komugjalda á heilsugæslum, munu hafa bein áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs í ágústmánuði, að sögn greinenda. Miðað við spár er útlit fyrir að verðbólgan haldist á svipuðum slóðum í júlí í kringum 5,2 prósent en muni síðan hækka nokkuð í næsta mánuði, skömmu áður en reynir á forsenduákvæði kjarasamninga.


Tengdar fréttir

Vextir hækkaðir sam­hliða horfum á minni hag­vexti og meira at­vinnu­leysi

Annan fundinn í röð hefur peningastefnunefnd ákveðið að hækka meginvexti Seðlabankans um 25 punkta, sem var í samræmi við spár flestra greinenda, á sama tíma og ný þjóðhagsspá teiknar upp dekkri efnahagshorfur sem einkennast af minni hagvexti og meira atvinnuleysi. Nefndin segist reiðubúin að herða taumhald peningastefnunnar frekar en ekki er útlit fyrir að verðbólgan fari undir fjögur prósent fyrr en á seinni hluta næsta árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×