Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir skrifar 17. júlí 2026 08:02 Þann 9. júlí sl. fór fram önnur umræða á Evrópuþinginu um svokallaða Chat Control 1.0-reglugerð. Reglugerðin framlengir tímabundna undanþágu frá reglum um trúnað rafrænna fjarskipta og heimilar áfram ákveðna sjálfvirka skimun einkasamskipta. Málsmeðferðin og niðurstaðan sem af henni leiddi sýna, að mati þeirra sem gagnrýnt hafa hana, hvernig tillaga sem hefur víðtæk áhrif á grundvallarréttindi gat haldið áfram í löggjafarferli Evrópusambandsins þrátt fyrir að fleiri þingmenn væru henni andvígir en fylgjandi. Málið hefur þó ekki síður vakið athygli vegna þeirrar málsmeðferðar sem beitt var og þeirra álitaefna sem það vekur um friðhelgi einkasamskipta og grundvallarréttindi. Evrópuþingið hafði áður hafnað framlengingu undanþágunnar í mars sl., en eftir að ráðið vísaði málinu aftur til þingsins kom það til annarrar umræðu í júlí. Kjarni reglugerðarinnar felur í sér heimild til handa stórum netþjónustum að skima ódulkóðuð einkaskilaboð í leit að myndefni sem tengist kynferðisofbeldi gegn börnum. Framlengingin gildir til apríl 2028. Jafnframt er til meðferðar ný og mun víðtækari reglugerð, svokölluð Chat Control 2.0. Við aðra umræðu í löggjafarferli Evrópusambandsins nægir ekki að fleiri þingmenn greiði atkvæði gegn tillögunni en með henni. Til að hafna afstöðu ráðsins þarf meirihluta allra þingmanna. Í þessu tilviki greiddu 314 þingmenn atkvæði gegn tillögunni en 276 með henni. Þar sem meirihluti allra 720 þingmanna, eða 361 atkvæði, náðist ekki varð niðurstaðan sú að framlenging reglugerðarinnar stendur.Að mati margra gagnrýnenda samrýmist slík niðurstaða illa lýðræðislegum grundvallarsjónarmiðum. Efnisleg hlið málsins er alvarleg í sjálfu sér. Það sem skyggir þó enn frekar á Evrópusambandið og Evrópuþingið, sem eiga að starfa með lýðræðislegum hætti, er sú misnotkun á málsmeðferð sem forysta þingsins beitti augljóslega. Það lá ljóst fyrir að þingið var komið á síðustu starfsdaga sína fyrir sumarhlé og það var nýtt með vafasömum hætti. Slík vinnubrögð fara illa saman við sífellda vísun Evrópusambandsins til „gilda“ sinna. Í umfjöllun um þetta mál hefur verið bent á að tímasetning atkvæðagreiðslunnar geri málið enn alvarlegra. Þar sem mæting þingmanna er jafnan lakari rétt fyrir sumarhlé getur krafan um aukinn meirihluta allra þingmanna haft úrslitaáhrif á niðurstöðuna. Við þessar aðstæður ræðst niðurstaðan ekki aðeins af atkvæðum þeirra sem taka þátt í atkvæðagreiðslunni, heldur einnig af því hverjir eru fjarverandi. Þegar um er að ræða mál sem felur í sér jafn víðtæk inngrip í frelsi til einkasamskipta verður að gera ríkar kröfur til málsmeðferðarinnar. Framgangur þess á ekki að ráðast af tímasetningu atkvæðagreiðslunnar, tímaskorti eða formsatriðum, heldur af skýrum pólitískum meirihluta. Vísun stuðningsmanna málsins til barnaverndar verður að sjálfsögðu að taka alvarlega. Hún má þó ekki verða til þess að útiloka gagnrýna lögfræðilega og stjórnskipulega umræðu. Einmitt vegna þess að markmiðið er svo mikilvægt verður að gera þeim mun strangari kröfur til þeirra úrræða sem beitt er. Bráðabirgðaákvæðið sem þarna var til umfjöllunar leggur þjónustuveitum ekki beina skyldu á herðar til að skima samskipti notenda heldur heimilar þeim það við tilteknar aðstæður. Það tekur fyrst og fremst til ódulkóðaðrar þjónustu, svo sem hefðbundinnar tölvupóstþjónustu og einkaskilaboða á samfélagsmiðlum, þar sem þjónustuveitan hefur tæknilegan aðgang að innihaldinu. Samskiptaforrit með enda-í-enda dulkóðun, svo sem Signal, Threema og WhatsApp, voru sérstaklega undanskilin eftir breytingar Evrópuþingsins. Þá er svokölluð client-side scanning, þar sem efni er skimað í tæki notandans áður en það er dulkóðað, heldur ekki hluti þessarar bráðabirgðalausnar. Reynslan af stafrænu eftirliti sýnir að þegar eftirlitsúrræði hafa einu sinni verið tekin upp eru þau sjaldnast felld niður. Þess í stað eru þau gjarnan útvíkkuð, gerð að eðlilegum hluta kerfisins og þróuð áfram. Með þessu breytist jafnframt grundvallarskilningurinn á „trausti og trúnaði“. Einkaskilaboð njóta ekki lengur sjálfkrafa trúnaðar heldur geta þau orðið viðfangsefni sjálfvirkrar skimunar. Þar er komið að einni af meginstoðum frjálslynds réttarríkis. Ríkið má ekki, í skjóli lögmæts markmiðs, koma á fyrirkomulagi þar sem einkasamskipti fólks eru skimuð og metin fyrirfram. Barátta gegn kynferðisofbeldi gegn börnum krefst markvissra rannsókna, nægilegra úrræða fyrir löggæsluyfirvöld og alþjóðlegs samstarfs. Almenn skimun einkasamskipta er hins vegar svo víðtækt úrræði að eðlilegt er að spyrja hve langt sé hægt að ganga áður en sú spurning vaknar hvort með því sé vikið frá lýðræðislegum grunngildum réttarríkisins. Markmiðið að vernda börn gegn alvarlegum glæpum er brýnt og óumdeilanlegt. En einmitt þess vegna má umræðan ekki einskorðast við barnavernd eina saman. Hún snýst einnig um hvar mörkin liggja þegar gripið er til úrræða sem skerða grundvallarréttindi, þar á meðal friðhelgi einkasamskipta. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Erna Bjarnadóttir Fjarskipti Evrópusambandið Stafræn þróun Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir skrifar Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Sjá meira
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun