Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Árni Sæberg skrifar 17. júlí 2026 16:06 Fiskibáturinn varð aflvana skammt utan hafnarinnar í Stykkishólmi Vísir/Vilhelm Engan sakaði þegar fiskibátur varð aflvana skammt utan hafnarinnar í Stykkishólmi í dag og rak í átt að landi. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út en stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um atvikið skömmu eftir hádegi.
Í fréttatilkynningu þess efnis frá Landhelgisgæslunni segir að sex hafi verið um borð í bátnum og í fyrstu hafi verið talið að akkeri, sem áhöfnin lét falla, næði ekki að stöðva rek hans. Bátar í grenndinni hafi jafnframt verið beðnir um að halda á vettvang til aðstoðar. Björgunarskip frá Rifi og Stykkishólmi hafi verið ræst út og þyrla Landhelgisgæslunnar hafi einnig flogið til Stykkishólms þar sem hún var til taks. Aðstæður á vettvangi hafi verið góðar og akkeri fiskibátsins haldið honum þar til björgunarskipið Björg tók hann í tog til hafnar í Stykkishólmi. Nóg að gera hjá þyrlusveitinni Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hafi sinnt þremur útköllum það sem af er degi. Meðan þyrlan var til taks í Stykkishólmi hafi hún verið kölluð út vegna fjórhjólaslyss norðan Hólmavíkur. Þyrlan hafi tekið á loft frá Stykkishólmi á þriðja tímanum og verið komin skömmu síðar á vettvang. Tveir hafi verið fluttir með þyrlunni á Landspítalann í Fossvogi, sem hafi lent þar laust fyrir klukkan fjögur. Fyrr í dag annaðist þyrlusveitin einnig sjúkraflug vegna slyss sem varð um borð í rútu á Landmannaleið. Einn slasaður var fluttur með þyrlunni til Reykjavíkur.
Snæfellsbær Landhelgisgæslan Sjávarútvegur Björgunarsveitir Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira