Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Sigurgeir Þorkelsson skrifar 18. júlí 2026 23:28 Donald Trump hafði búist við að íranska þjóðin myndi rísa upp gegn klerkastjórninni þegar árásir Bandaríkjanna og Ísraels á stjórnvöld hæfust. Myndin var tekin í Teheran, höfuðborg Írans, þann 14. júlí síðastliðinn. Majid Saeedi/Getty Tveir bandarískir hermenn eru látnir og sá þriðji er týndur eftir eldflaugaárás Írans í Jórdaníu í gær, föstudag. Fjórir hermenn til viðbótar voru fluttir til nánari aðhlynningar á sjúkrahúsi en hafa þegar verið útskrifaðir. Alls hafa sextán hermenn Bandaríkjanna nú látist í átökunum.
Einhverjir hermenn til viðbótar hlutu minniháttar meiðsli og hafa þegar snúið aftur til starfa. Nöfn hinna látnu hafa ekki verið gefin upp og ekki hefur verið gefin upp nákvæm staðsetning árásarinnar, aðeins að hún hafi átt sér stað í Jórdaníu og að hinir særðu hafi verið fluttir á sjúkrahús þar í landi. Jórdönsk yfirvöld sögðu fyrr í dag frá því að þeim hefði tekist að stöðva tíu eldflaugar sem skotið hafði verið frá Íran. Ekkert var tekið fram um skaða sem af árásum hefði hlotist í tilkynningunni. Samkvæmt írönskum ríkismiðlum sagði Íranski byltingarvörðurinn frá því í dag að hann hefði grandað í það minnsta tveimur orrustuþotum í Jórdaníu. Átök milli Írans annars vegar og Bandaríkjanna og Ísrael hins vegar hafa undið upp á sig síðustu vikuna. Vopnahlé hafði þá ríkt milli deiluaðila, að nafninu til, í tæpan mánuð. Æðstiklerkur Írans, Mojtaba Khamenei, sagði í skriflegri yfirlýsingu að deginum ljósara væri að undirskrift forseta Bandaríkjanna væri merkingarlaus með öllu. Khamenei hefur ekki sést opinberlega síðan í upphafi stríðsins þegar loftárásir voru gerðar á heimili æðstaklerksins, föður hans heitins, Ali Khamenei, sem urðu honum aldurtila.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Bandaríkin Tengdar fréttir Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hættur við innheimtu tuttugu prósenta tolls af varningi sem siglir um Hormússundi sem hann boðaði í gær. 14. júlí 2026 18:38 Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Bandaríkjamenn gerðu árásir á skotmörk í Íran í nótt, þriðju nóttina í röð. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að árásirnar yrðu harðar og að Bandaríkjastjórn myndi í kjölfarið koma aftur á hafnarbanni gegn Írönum á Persaflóa. 14. júlí 2026 06:43 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Sjá meira
Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hættur við innheimtu tuttugu prósenta tolls af varningi sem siglir um Hormússundi sem hann boðaði í gær. 14. júlí 2026 18:38
Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Bandaríkjamenn gerðu árásir á skotmörk í Íran í nótt, þriðju nóttina í röð. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að árásirnar yrðu harðar og að Bandaríkjastjórn myndi í kjölfarið koma aftur á hafnarbanni gegn Írönum á Persaflóa. 14. júlí 2026 06:43