„Satt best að segja er mér drullusama“ Valur Páll Eiríksson skrifar 19. júlí 2026 19:16 Óskar Hrafn lét vel í sér heyra í rigningunni. Vísir/Anton Brink Óskar Hrafn Þorvaldsson hafði lítið út á sitt lið að setja eftir frábæran 5-0 sigur liðsins á Stjörnunni í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Honum er sama um að hafa haldið hreinu og leitar ekki Ozempic lausna á markaðnum.
Aðspurður hvort undan einhverju sé að kvarta eftir yfirburði KR-inga í leik dagsins segir Óskar: „Ekki nokkrum sköpuðum hlut. Þetta var frábær leikur allar 90 mínúturnar. Ég get ekki annað sagt en að þetta sé virkilega öflug frammistaða frá fyrstu mínútu til síðustu.“ KR var með öll völd allan leikinn og hefði hæglega getað skorað fleiri mörk í leik dagsins. „Hrós á drengina. Við töluðum um að við þyrftum að koma með orku. Ég hef sjálfur staðið stundum í þeirra sporum að vera með Evrópukeppnina. Það er erfitt að skipta um hatt. Þannig að við töluðum um það fyrir leikinn að við þyrftum að koma inn með alvöru orku. Það fannst mér við gera. Við hefðum átt að skora miklu, miklu fleiri mörk í þessum leik,“ segir Óskar og bætir við: „En ég ætla ekki að kvarta yfir því. Við höldum hreinu sem er mjög sjaldséð og sjaldgæft. Það eru ellefu mánuðir síðan við héldum hreinu síðast í deildarleik. Við vorum bara mjög einbeittir allan leikinn og ég er ánægður með það.“ Sefur vel á nóttunni þó liðið haldi ekki hreinu Eins og Óskar nefnir er KR að halda hreinu í fyrsta sinn í sumar og í fyrsta sinn í ellefu mánuði í deild. Vonast hann til að það sé styttra en ellefu mánuðir í næsta tilfelli? „Ég er ánægðari með fimm mörk en að halda hreinu. Satt best að segja er mér drullusama um það, ef við vinnum. Ef við fáum á okkur þrjú og skorum fimm þá er það bara fínt, það er bara geggjað. Það er það sem fólk vill sjá. Fólk vill fá mörk,“ segir Óskar og bætir við: „En auðvitað auðveldar það hlutina og við viljum verða betri í því sem við erum að gera varnarlega og þá fylgir það með að við höldum oftar hreinu. En ég sef alveg á nóttinni yfir þessu.“ KR hefur misst Amin Cosic og Gyrði Hrafn Guðbrandsson á markaðnum. Galdur Guðmundsson hefur komið vel inn fyrir Amin og Óskar hrósaði honum fyrir innkomu sína í liðið að undanförnu. Engar Ozempic lausnir Jason Daði Svanþórsson þreytti þá frumraun sína í dag eftir að hafa fengið leikheimild í vikunni. En Óskar býst ekki við að bæta frekar við hópinn, nema um leikmenn til framtíðar sé að ræða. „Ég veit það ekki maður. Það er langt eftir af markaðnum. Maður á aldrei að segja aldrei en við erum ekkert endilega að leita, nema að það passi fyrir okkur þegar til lengri tíma er litið. Við erum ekki að fara í neina skyndihjálp eða að fá okkur Ozempic sprautuna til að bæta í eitthvað til skamms tíma,“ segir Óskar Hrafn.
KR Besta deild karla Stjarnan Íslenski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjá meira