Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar 20. júlí 2026 11:30 Hvers vegna líta allir leikvellir út nú til dags eins og þeir séu hannaðir af lögfræðingum. Það eru sætisbelti á rólunum, þykkt lag af fallefni úr gúmí eða plastkurli. Agnarsmáar rennibrautir og klifurgrindur sem henta í mesta lagi börnum í leikskóla. Öryggishyggjan er allsráðandi. En hvort er heilbrigðara ef staldrað er við og hugsað. Hvernig bregst ónæmiskerfi ungviðisins við algjörlega gerilsneiddu leikumhverfi. Ef við setjum þetta í samhengi, hvort væri barni betra, að japla á sandi eða gleypa gúmíkurl. Hvernig læra börn að meta áhættu ef engin áhætta er fyrir hendi. Það er eðlileg varúðarráðstöfun að klæða keðjur á rólum svo ekki sé hætta á að þær vefjist um háls, en ekki að setja á þær belti svo enginn leið sé að stökkva úr þeim. Börn þurfa að læra að passa sig og athafna sig í umhverfi sínu á öruggan hátt. En það er ekki gert með því að snuða þau um krefjandi ástæður. Mér er minnisstætt viðtal við fyrrverandi bæjarstjóra Álftanes þar sem við samrunann við Garðabæ þurfti að rífa niður ÖLL leiktæki í bæjarfélaginu því þau vöru ekki öryggisvottuð. Einnig kemur til hugar fíaskóið kringum trékofann í vesturbænum sem Reykjavíkurborg hugðist rífa niður af öryggisástæðum þó blessunarlega hafi það ekki gengið eftir þökk sé öflugum mótmælum barnanna sem kofann byggðu og foreldra þeirra. Því þau voru auðvitað fullfær um að meta aðstæður. Og þar liggur vandinn, öryggishyggjan snýst upp í andhverfu sína og hættir að mæta þörfum þeirra sem hún á að þjóna því hvernig á að læra að umgangast umhverfi sitt af öryggi og virðingu ef ekkert liggur við. Kerfið sem er svo upptekið að passa að enginn sé ábyrgur fyrir engin líkama eða gjörðum getur ekki búið til þroskandi umhverfi sem börn þurfa til að vaxa úr grasi. Því ef áhætta liggur fyrir þá er engin endurgjöf frá umhverfinu og það rænir þroska. Veitum börnum ábyrgð og treystum þeim til að reka sig á. Að klifra í trjánum, ganga í skólann eða á æfingu. Börn geta hluti, ef við bara leyfum þeim það. Höfundur er kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Már Sigurðsson Börn og uppeldi Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Hvers vegna líta allir leikvellir út nú til dags eins og þeir séu hannaðir af lögfræðingum. Það eru sætisbelti á rólunum, þykkt lag af fallefni úr gúmí eða plastkurli. Agnarsmáar rennibrautir og klifurgrindur sem henta í mesta lagi börnum í leikskóla. Öryggishyggjan er allsráðandi. En hvort er heilbrigðara ef staldrað er við og hugsað. Hvernig bregst ónæmiskerfi ungviðisins við algjörlega gerilsneiddu leikumhverfi. Ef við setjum þetta í samhengi, hvort væri barni betra, að japla á sandi eða gleypa gúmíkurl. Hvernig læra börn að meta áhættu ef engin áhætta er fyrir hendi. Það er eðlileg varúðarráðstöfun að klæða keðjur á rólum svo ekki sé hætta á að þær vefjist um háls, en ekki að setja á þær belti svo enginn leið sé að stökkva úr þeim. Börn þurfa að læra að passa sig og athafna sig í umhverfi sínu á öruggan hátt. En það er ekki gert með því að snuða þau um krefjandi ástæður. Mér er minnisstætt viðtal við fyrrverandi bæjarstjóra Álftanes þar sem við samrunann við Garðabæ þurfti að rífa niður ÖLL leiktæki í bæjarfélaginu því þau vöru ekki öryggisvottuð. Einnig kemur til hugar fíaskóið kringum trékofann í vesturbænum sem Reykjavíkurborg hugðist rífa niður af öryggisástæðum þó blessunarlega hafi það ekki gengið eftir þökk sé öflugum mótmælum barnanna sem kofann byggðu og foreldra þeirra. Því þau voru auðvitað fullfær um að meta aðstæður. Og þar liggur vandinn, öryggishyggjan snýst upp í andhverfu sína og hættir að mæta þörfum þeirra sem hún á að þjóna því hvernig á að læra að umgangast umhverfi sitt af öryggi og virðingu ef ekkert liggur við. Kerfið sem er svo upptekið að passa að enginn sé ábyrgur fyrir engin líkama eða gjörðum getur ekki búið til þroskandi umhverfi sem börn þurfa til að vaxa úr grasi. Því ef áhætta liggur fyrir þá er engin endurgjöf frá umhverfinu og það rænir þroska. Veitum börnum ábyrgð og treystum þeim til að reka sig á. Að klifra í trjánum, ganga í skólann eða á æfingu. Börn geta hluti, ef við bara leyfum þeim það. Höfundur er kennari.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar