Markasúpa í Kórnum Andri Broddason skrifar 20. júlí 2026 21:38 HK vann stórsigur á Vestra í Lengjudeild karla í kvöld. Haraldur/Vísir HK vann stórsigur á Vestra í Lengjudeild karla í kvöld. Lið Vestra hefur greinilega verið þreytt eftir stórleik gegn Qarabak í undankeppni Evrópudeildarinnar.
Strax í byrjun leiks var HK sterkari aðilinn og ljóst var að liðið ætlaði að sækja þrjú stig í leiknum. Dominic Radic átti stórleik hjá HK og opnaði markareikninginn strax á 25. mínútu með góðum skalla. Nokkrum mínútum síðar bætti Tumi Þorvarsson við öðru marki HK og hélt liðið áfram að sækja. Fyrir lok fyrri hálfleiks bætti HK við tveimur mörkum í viðbót frá Viktori Helga Benediktssyni og Karli Ágústi Karlssyni. Staðan var 4-0 í hálfleik og vægast sagt slæmur fyrri hálfleikur hjá Vestra. Í seinni hálfleik hélt HK áfram að sækja á Vestra og skoraði mark sem var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Vestri náði þó að minnka muninn á 67. mínútu og smá vonarglæta birtist hjá leikmönnum Vestra. Aðeins fimm mínútum síðar skoraði Dominik Radic sitt annað mark fyrir HK og róðurinn var farinn að þyngjast verulega fyrir Vestra. Til að bæta gráu ofan á svart fékk Vestri víti á 81. mínútu en Gunnar Jónas Hauksson brenndi af punktinum. Marinó Steinar Hagbarðsson bætti upp fyrir vítaklúður Vestra með flottu marki á 85. mínútu en til að innsigla stórsigur skoraði Albert Ingi Jóhansson í liði Vestra sjálfsmark og endaði HK á að vinna leikinn 6-2. HK er því komið í þriðja sæti Lengjudeildarinnar með 28 stig. Vestri hefði getað komist í fimmta sæti deildarinnar með sigri en heldur áfram í sjötta sæti. Vestri hefur ekki unnið í síðustu sex leikjum. Upplýsingar um leikinn fengust á fótbolti.net
Lengjudeild karla Íslenski boltinn HK Vestri Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fleiri fréttir Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Sjá meira