Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Samúel Karl Ólason skrifar 21. júlí 2026 07:52 Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur fundað með þó nokkrum herforingjum og leiðtogum innan hersins á undanförnum dögum og íhugar að skipta út formanni herforingjaráðs Úkraínu, í kjölfar mikilla mótmæla. Þau fylgdu uppsögn vinsæls varnarmálaráðherra landsins. Forsetaembætti Úkraínu Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur á undanförnum dögum fundað með mörgum af helstu herforingjum úkraínska hersins. Forsetinn er sagður leita að arftaka Oleksanders Sirskí, formanns herforingjaráðs Úkraínu. Mikil mótmæli hafa átt sér stað í Úkraínu eftir að Selenskí lét varnarmálaráðherrann Mykhailo Fedóróv taka pokann sinn í síðustu viku.
Fregnir hafa borist af því að Sirskí og Fedóróv hafi ekki getað starfað saman og hafi jafnvel báðir beðið Selenskí um að reka hinn. Selenskí rak Fedóróv en sá þykir tiltölulega vinsæll meðal almennings í Úkraínu. Það þykir Sirskí ekki. Sirskí hélt utan um varnir Kænugarðs í upphafi innrásar Rússa í febrúar 2022 og hlaut mikið lof fyrir á sínum tíma. Síðan þá hefur hann verið sakaður um gamaldags hugsanahátt hvað varðar hernað og „sovéskar“ aðferðir. Meðal annars hefur hann verið sakaður um of mikil afskipti af undirmönnum sínum og þykir reyna að stýra hverju smáatriði sjálfur. Eftir að hann var rekinn ræddi Fedóróv við blaðamenn og gagnrýndi Sirskí fyrir að standa í vegi nútímavæðingar úkraínska hersins og nauðsynlegum umbótum. Fedóróv hefur spilað stóra rullu í umfangsmeiri notkun Úkraínumanna á drónum til árása á birgðalínur Rússa og skotmörk í Rússlandi. Sjá einnig: Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Kíríló Búdanóv, starfsmannastjóri Selenskís, kallaði í gær eftir ró og sagði að tekið hefði verið eftir mótmælunum. Rödd almennings hefði heyrst og verið væri að bregðast við þeim. Úkraína yrði sterkari að ástandinu yfirstöðnu. Í gær fundaði Selenskí með fimm herforingjum og einum ofursta en allir eru taldir koma til greina sem næsti formaður herforingjaráðsins. Hann hafði áður fundað með fleirum sem koma til greina og hefur hann fundað oftar en einu sinni með nokkrum þeirra. Blaðamaður Financial Times í Úkraínu segir sjö herforingja koma til greina sem arftaka Sirskís, taki Selenskí þá ákvörðun að skipta æðsta herforingja Úkraínu út. Í færslu sem hann skrifaði á samfélagsmiðla í gær sagðist Selenskí hafa kallað saman sérstakan fund herforingjaráðs Úkraínu, varnarmálaráðuneytisins, fjármálaráðuneytisins og annarra eftir að hann hafði rætt við helstu stjórnendur hersins. Hann sagði umræðurnar á fundinum í gær hafa verið hreinskilnar og að hann myndi halda áfram að meta aðstæður og hvaða breytingar þyrfti að gera. Selenskí sagðist þakklátur fyrir umræðurnar og að Úkraínumenn yrðu að vera vel undirbúnir fyrir komandi haust og meðfylgjandi erfiðleika. Today, following several days of discussions with the commanders of our corps carrying out the most critical combat missions, I convened a special meeting of the Staff. For the first time, there was direct, first-hand dialogue between our leading weapons and equipment… pic.twitter.com/kV2ZlunRT9— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) July 20, 2026 Financial Times sagði frá því í gær að Selenskí hefði boðið Fedóróv nýja stöðu í ríkisstjórn sinni um helgina. Sú staða átti að vera innan þjóðaröryggis- og varnarráðs Úkraínu og átti hann að hafa beinan aðgang að Selenskí og halda utan um umbætur, tækninýjungar og framleiðslu langdrægra vopna hjá herafla Úkraínu, svo eitthvað sé nefnt. Þessu boði, sem forsetinn setti fram á sex klukkustunda fundi með Fedóróv um helgina, hafnaði hann. Selenskí er sagður hafa rætt við Fedóróv á hverjum degi síðan hann rak hann á fimmtudaginn og gert honum nokkur tilboð, sem Fedóróv hefur öllum hafnað. Fedóróv vill eingöngu aftur í varnarmálaráðuneytið og telur að hann hafi möguleika á því. Bakhjarlar Úkraínumanna í Evrópu eru sagðir hafa þrýst á Selenskí að leysa vandamálið eins fljótt og auðið er.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fleiri fréttir Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Sjá meira