Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Jón Þór Stefánsson skrifar 21. júlí 2026 11:43 Guðrún Karls biskup verður verndari Samheldni, stofnverkefnis Samherja þar sem Baldvin Þorsteinsson er forstjóri. Samherji hefur stofnað átakssjóðinn Samheldni, sem er ætlað að standa fyrir stórfelldu átaki í innviðafjárfestingum hjá þeim sem sinna meðferðarúrræðum fyrir fíknisjúka á Íslandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu, en þar segir að Samherji muni leggja fram tuttugu milljónir á ári á næstu fimm árum í verkefnið, sem samanlagt gera hundrað milljónir. Þá sé markmiðið að fá atvinnulífið til liðs við verkefnið þannig að sjóðurinn geti úthlutað yfir 300 milljónum króna til þriggja verkefna sem sögð eru bráðnauðsynleg. Guðrún Karls Helgudóttir biskup verður verndari Samheldni. Þrjú verkefni eru nefnd í tilkynningunni: Í fyrsta lagi á að bæta umgjörðina fyrir fjölskyldur hjá SÁÁ þar sem börn og ungmenni glíma við fíknivanda. Í öðru lagi á að reisa smáhýsi í landi Hlaðgerðarkots í Mosfellsdal fyrir fólk sem hefur misst, eða aldrei öðlast, getu til að búa sjálfstætt. Í þriðja lagi á að reisa nýja álmu og tuttugu nú pláss við meðferðarheimilið í Krýsuvík. „Við vildum koma inn með myndarlegum hætti en því miður er þörfin svo gríðarleg að fleiri þurfa að leggjast á árarnar,“ er haft eftir Baldvini Þorsteinssyni, forstjóra Samherja í tilkynningunni. „Í rekstri okkar höfum við í gegnum tíðina fundið hversu djúpstæð, hryggileg og eyðileggjandi fíknivandamál eru og reynt að bregðast við með því að leggja starfsfólki okkar og fjölskyldum þeirra lið þegar þau hafa lent í slíkum öngstrætum,“ segir hann líka. „Í nálægðinni við starfsfólkið finnum við hvað þessi mál eru átakanleg og hversu harkalega þau reyna á alla sem þeim tengjast. Við viljum nú gera þetta með formlegri og víðtækari hætti en við höfum gert hingað til og efna til sameiginlegs átaks til að takast hraustlega á við vandann. Við höfum góðar vonir um að við fáum breiðan almennan stuðning og öflug fyrirtæki og fólk í íslensku atvinnu- og þjóðlífi til þátttöku með loforðum um framlög næstu fimm árin,“ segir Baldvin. „Ég fagna þessu framtaki og því hugarfari sem þar kemur fram. Ég og við öll hjá kirkjunni þekkjum alltof vel afleiðingar fíknisjúkdóma og mikilvægi meðferðarúrræða. Ég mun því gera það sem ég get til þess að leggja þessu framtaki lið,“ er haft eftir Guðrúnu Karls Helgudóttur biskup, verndara Samheldni. Stjórn samtakanna skipa Anna María Kristinsdóttir, mannauðsstjóri Samherja, Einar Logi Vignisson, framkvæmdastjóri RÚV sölu, Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri ÚA, og Valgeir Magnússon, stjórnarformaður Pipars\TBWA, sem verður jafnframt stjórnarformaður samtakanna. Varamaður er Marta María Winkel Jónasdóttir. Þá verður Söfnunarráð Samheldni eftirfarandi: Baldvin Þorsteinsson, Einar Logi Vignisson, Svanhildur Þórsteinsdóttir, Patricia Bono, Björgvin Páll Gústavsson, Helen Breiðfjörð, Valgeir Magnússon
Fíkn Meðferðarheimili Sjávarútvegur Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira