Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 21. júlí 2026 21:45 Guðni Eiríksson er hæstánægður með sitt lið upp á síðakstið. Anton/Vísir „Maður kvartar ekki þegar liðið manns skorar sex til sjö mörk í leik,“ sagði glaður Guðni Eiríksson, þjálfari FH, eftir markaleik í Kaplakrika í kvöld. Lokatölur 7-3 fyri toppliði FH gegn Stjörnunni.
FH hélt áfram sinni sigurgöngu í deildinni með enn einum markaleiknum í kvöld en liðið hefur skorað 20 mörk í síðustu þrem leikjum. „Við erum bara að halda áfram með það sem við erum að gera leik eftir leik, skorum fullt af mörkum og sköpum okkur fullt af færum og hefðum svo sannarlega getað skorað fleiri mörk.“ Guðni var afar sáttur með sitt lið sem hefði hæglega getað skorað fleiri mörk. „Frábær fyrri hálfleikur hjá FH liðinu sem lagði grunninn að þessum sigri, klárlega. Fórum inn í hálfleikinn 4-1 og það hefði getað verið miklu miklu stærra. Við ógnuðum þeim alls staðar á vellinum, vinstra megin, hægra megin og fyrir miðsvæðinu og þar á milli þannig að það var erfitt að eiga við okkur.“ Gríðarleg ákefð einkennir FH liðið sem er að sögn Guðna tilkomin vegna þess góða forms sem leikmenn hans eru í. „Til þess að viðhalda ákefð sem þessari þá þarf liðið að vera í góðu formi og þær eru það svo sannarlega, það er bara algjör lykill. Þú getur ekki spilað svona fótbolta nema að vera í standi.“ Guðni gætir að því að horfa ekki of langt fram í framtíðina. „Við erum bara að horfa á einn leik í einu og hugsa um okkur. Þegar við erum að undirbúa okkur fyrir leiki þá erum við bara að pæla í okkur og hvernig við ætlum að fara í gegnum andstæðinginn og það er ekkert annað sem við erum að hugsa um. Hver leikur á sitt líf og við ætlum að njóta í kvöld og svo byrjum við bara að undirbúa næsta leik. Þannig gengur lífið fyrir sig þegar tímabilið er í gangi.“ FH er á toppnum og hefur verið þar stóran hluta tímabilsins, sem er ekki eitthvað sem FH-ingar eru vanir að sjá. Aðspurður hvernig það gangi að halda leikmönnum sínum á jörðinni í þeirri velgengni sem FH liðið er að njóta þessi dægrin þá hafði Guðni þetta að segja. „Það hefur gengi furðu vel eins og úrslitin sýna leik eftir leik. Það sem skiptir rosalega miklu máli er að það er enginn að fara eitthvað fram úr sér. Þetta er langt mót og ef við ætlum að vera eitthvað að horfa fram í tímann þá erum við að skemma augnablikið sem að við erum að búa til leik eftir leik. Við erum að njóta og við spilum af gleði og ég held að það sjáist alveg. Það er gaman að spila þann fótbolta sem við spilum.“
Besta deild kvenna Íslenski boltinn FH Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Barcola í hóp á morgun Enski boltinn Fleiri fréttir Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Uppgjörið: Csíkszereda - Breiðablik 0-1 | Blikar áfram í Evrópu Draumurinn að rætast Liverpool fékk nýjan markvörð Allt teymi Heimis framlengir Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Vatnhamar til Vejle Sjá meira