Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Oddur Ævar Gunnarsson og Eiður Þór Árnason skrifa 23. júlí 2026 22:05 Aldís Björgvinsdóttir, íbúi í Seljahverfi, segist hafa verið út úr heiminum eftir atvikið. Vísir/Lýður Valberg Kona á rafhlaupahjóli sem fékk alvarlegt höfuðhögg og marðist illa í andliti vegna sandgryfju við gangbraut segist þakklát fyrir að vera á lífi. Ótrúlegt sé að ekki hafi verið brugðist við eftir að ítrekað var bent á lélegan frágang á svæðinu.
Slysið varð um hálf átta leytið á þriðjudagskvöld við gangbraut við Skógarsel í Seljahverfi. Aldís var að koma úr verslun Nettó í Mjóddinni þegar hún fór á Hopphjóli í gegnum undirgöng og sá í kjölfarið það sem hún taldi vera sandhaug. Svo reyndist ekki vera. „Ég sé sand á götunni, ég hægi á mér og held þetta sé eftir veturinn. En viti menn, þetta er sandgryfja sem ég fell ofan í með andlitið fyrst og rotast, beint út á götu hérna,“ segir Aldís Björgvinsdóttir, íbúi í Seljahverfi, um atvikið. „Það voru vitni að þessu sem hafa haft samband við mig og viðkomandi stoppaði bílinn til þess að stöðva umferð svo það yrði ekki keyrt yfir mig líka.“ Mæðgur í æfingaakstri urðu varar við Aldísi á götunni. Hún kveðst þeim þakklát fyrir það sem hún kallar lífsbjörg. Tilkynnt áður Sandgryfjuna má rekja til framkvæmda verktaka á stígnum en inni á Facebook-hópnum Gerum betur! sem helgaður er ábendingum um lélegan frágang vegna framkvæmda sem þegar hafa verið sendar til borgarinnar má sjá að þrisvar sinnum hefur verið bent á lélegan frágang á stígnum: í febrúar, mars og maí. Hvað finnst þér um að nú séu menn að fylla upp í þetta eftir að þú lentir þarna í alvarlegu slysi? „Ég er svolítið í áfalli yfir þessu og eiginlega eftir því sem ég heyri fleiri sögur og fólk hefur samband við mig þá er ég bara reiðari og reiðari yfir því að það sé síðan 4. febrúar búið að margtilkynna þetta og þessa staðsetningu sérstaklega. Ég hefði getað orðið að grænmeti ef ég á að segja alveg eins og er. Ég mundi ekkert, ég mundi ekki einu sinni hvað börnin mín eru gömul þegar ég rankaði við mér.“ Aldís segist viss um að hið sama hefði gerst hefði hún verið á reiðhjóli í stað hlaupahjóls og skorar á borgina að gera betur. „Ég var með hjálm og samkvæmt vitnum fór ég mjög hægt og varlega og þetta fall hafi gerst mjög rólega. Þetta hefur ekkert með Hopphjól að gera, ég vil taka það fram. Ég er að tala um að hjólastólar gætu lent í þessu, göngugrind, venjuleg reiðhjól, það skiptir ekki máli.“
Reykjavík Rafhlaupahjól Samgönguslys Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Sjá meira