Fótbolti

Klopp kynntur sem nýr lands­liðs­þjálfari Þýska­lands

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Jurgen Klopp gerir fjögurra ára samning. 
Jurgen Klopp gerir fjögurra ára samning.  Christian Kaspar-Bartke/Getty Images

Jurgen Klopp var kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands á blaðamannafundi í morgun. Hann tekur við starfinu af Julian Nagelsmann og gerir samning sem gildir út heimsmeistaramótið 2030.

Klopp mun hefja störf þann 15. ágúst næstkomandi en fyrsti leikur hans við stjórnvölinn verður gegn Hollandi þann 24. september í Þjóðadeildinni. Honum til aðstoðar verða Peter Krawietz og Pepijn Lijnders, sem hafa unnið með Klopp lengi, ásamt Sven Bender, sem spilaði áður undir stjórn Klopp.

Þýskaland féll úr leik á HM í sumar í 32-liða úrslitum gegn Paragvæ, þá lét Julian Nagelsmann af störfum og síðan þá hefur bara eitt nafn verið nefnt í umræðunni um næsta landsliðsþjálfara.

Klopp hefur starfað sem erindreki Red Bull síðustu tvö ár, síðan hann hætti sem knattspyrnustjóri Liverpool í ensku úrvalsdeildinni árið 2024, en mun ekki halda áfram sem yfirmaður knattspyrnumála fyrir orkudrykkjaframleiðandann.

Til að þakka Red Bull fyrir að sleppa Klopp án þess að þiggja greiðslu ákvað þýska sambandið að spila næstu þrjá leiki liðsins á leikvangi RB Leipzig.

Á blaðamannafundinum í morgun sagði Klopp mikinn heiður að taka við þessu starfi og lýsti því sem hápunkti þjálfaraferilsins. Hann gaf það í skyn að ferillinn yrði ekkert lengri en þetta, það er að segja að hann myndi ekki taka við öðru starfi eftir að hafa þjálfað þýska landsliðið.

„Þetta er mjög sérstakur dagur fyrir mig. Ég vil þakka öllum sem gerðu þetta mögulegt,“ sagði Klopp og vísaði þar einnig til Red Bull.

„Ég hafði einhverja hugmynd um hversu stórt landsliðsþjálfarastarfið er en þegar maður er orðaður við það finnur maður enn frekar fyrir umfanginu og ábyrgðinni…

Gagnrýnið mig ef eitthvað gengur ekki. Ég er viljugur til að vinna í því. Þetta snýst allt um starfið. Jürgen Klopp á sér engan feril eftir landsliðið. Þetta er hápunktur ferilsins…

Þann dag sem þið viljið mig ekki lengur, þá segið þið það og ég er farinn. Án starfslokagreiðslu. Ef þið segið á morgun að ég sé ömurlegur, þá er ég farinn. Ekki bara ein manneskja, það þyrftu að vera fleiri. Ef þýska sambandið segir að ég sé ömurlegur, þá er ég farinn. Ef þið hagið ykkur illa og látið fjölskyldu mína ekki í friði, þá er ég farinn,“ sagði Klopp samkvæmt Bild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×