„Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Freyja Þórisdóttir skrifar 25. júlí 2026 13:48 Arndís Hrefna Einarsdóttir er aðal sprautan í hópnum sem fagnaði heimkomu Baldurs í gær, föstudaginn 24. júlí. Aðsend Fjölskylda sem býr á Barðaströnd í Breiðafirði tók sig til og útbjó stærðarinnar skilti til að fagna því að ferjan Baldur væri snúin aftur til sinnar reglulegu siglingarleiðar. Hún var send suður til Vestmannaeyja fyrir um sex vikum síðan til að sinna ferjuflutningum þar í fjarveru Herjólfs. „
Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þess að Vestmannaeyingar þurftu á honum að halda til að bæta við áttundu ferðinni hjá sér á dag,“ segir Arndís Hrefna Einarsdóttir, íbúi á Seftjörn á Barðaströnd. Snúa vörn í sókn Arndís segir alla fjölskylduna hafa lagst á eitt, unga sem aldna, við gerð skiltisins.Aðsend Rekstraraðilar í Breiðafirði hafi orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni enda fækkaði þeim ferðamönnum sem ferðast um svæðið snögglega þegar Baldur var tekinn úr umferð í firðinum. „Þetta er náttúrulega bara hreinlega ofbeldisfull aðgerð gagnvart íbúum, þjónustuaðilum og ferðaþjónustunni hérna á Vestfjörðum,“ segir Arndís og ítrekar að „aðgerðin hafi bitnað illilega á þessum aðilum.“ Þá segir Arndís íbúa á svæðinu samt engan veginn vilja vera stimplaða sem einhverja fýlupúka sem setji út á allt og alla. Þrátt fyrir gremjuna sem hafi myndast síðastliðinn einn og hálfan mánuð séu allir jákvæðir og glaðir að fá ferjuna aftur til baka. „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn og gera eitthvað jákvætt út úr þessu í trausti þess að báturinn verði ekki tekinn af okkur aftur,“ segir hún og útskýrir að hugmyndin hafi vaknað hjá fjölskyldunni á Seftjörn að „útbúa einhvern gjörning til að bjóða Baldur velkominn til baka“. Það hafi allir lagst á eitt og úr hafi orðið þetta skilti þar sem þau bjóði Baldur velkominn heim. „Við segjum bara: „Velkominn heim, Baldur,“ því hér á hann heima á Breiðafirði.“ Högg fyrir ferðaþjónustustarfsemi á svæðinu Arndís segist ekki hafa tekið eftir miklum viðbrögðum skipverja en viti til þess að einhverjir hafi tekið myndir. Ekki liggi þó á viðbrögðum fólks á sunnanverðum Vestfjörðum. „Það er mjög ánægt með framtakið og treystir því að við munum hafa Baldur núna hér eftir eins og við höfum haft hann og að þetta muni ekki gerast aftur hreinlega.“ Fjölskyldan á Seftjörn tók sig til og bauð Baldur velkominn aftur heim í fjörðinn.Aðsend Að hennar mati sé augljóst að erlendir ferðamenn leggi leið sína yfir fjörðinn með ferjunni og keyri svo suður firðina, því hafi það verið högg fyrir ferðaþjónustuaðila á svæðinu þegar Baldur hafi verið sendur suður. „Ofsalega falleg leið og fallegur hringur að fara og greinilega mjög vinsæll, því að þetta gjörsamlega bara datt niður meðan í þessar sex vikur, sem eru náttúrulega lykilvikur ársins hjá flestum ferðaþjónustuaðilum, ekki bara hérna á Vestfjörðum,“ segir Arndís. Þau vilji því vekja athygli á málinu og sjá til þess að svona gerist ekki aftur. „Við viljum að það komist til skila til ráðamanna sem gera þetta að við tökum þá bara öll skellinn ef við höfum ekki efni á að halda uppi almennilegum samgöngum, hvort sem er við sunnanverða Vestfirði eða Vestmannaeyjar.“
Ferjan Baldur Vestmannaeyjar Herjólfur Tengdar fréttir Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Bæjarstjóri Vestmannaeyja fagnar endurkomu Herjólfs og kallar eftir kaupum á nýju skipi til að hlaupa í skarðið við bilun. Ráðherra boðar heildstæða ferjuáætlun fyrir landið allt. Öryggissérfræðingur segir lítið notaða aðferðafræði geta reynst Íslandi vel í staðinn fyrir að treysta á að allt reddist. 24. júlí 2026 16:02 Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Sveitarstjóri Vesturbyggðar telur að vafi leiki á hvort samningur Vegagerðarinnar heimili það að Baldur sé nýttur til siglinga milli lands og Eyja samhliða Herjólfi. 11. júní 2026 11:44 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira
Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Bæjarstjóri Vestmannaeyja fagnar endurkomu Herjólfs og kallar eftir kaupum á nýju skipi til að hlaupa í skarðið við bilun. Ráðherra boðar heildstæða ferjuáætlun fyrir landið allt. Öryggissérfræðingur segir lítið notaða aðferðafræði geta reynst Íslandi vel í staðinn fyrir að treysta á að allt reddist. 24. júlí 2026 16:02
Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Sveitarstjóri Vesturbyggðar telur að vafi leiki á hvort samningur Vegagerðarinnar heimili það að Baldur sé nýttur til siglinga milli lands og Eyja samhliða Herjólfi. 11. júní 2026 11:44