Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Eiður Þór Árnason skrifar 27. júlí 2026 07:56 Börn í Hormússundi í lok júní. Ap/ISNA/Amirhosein Khorgooi Íran mun gera hlé á árásum svo lengi sem Bandaríkin gera slíkt hið sama. Þetta hefur Reuters eftir háttsettum írönskum embættismanni en Bandaríkin gerðu hlé á sprengjuárásum sínum eftir að ráðgjafar Donalds Trump forseta tjáðu honum að listi skotmarka færi þverrandi og þeir hefðu áhyggjur af stöðu vopnabúrs Bandaríkjanna.
Ekki var greint frá neinum árásum um helgina en hléið kemur í kjölfar þrettán daga árásarhrinu sem virtist færast í aukana. Íran svaraði árásum Bandaríkjanna með eigin árásum á nágrannalönd sín sem hýsa bandarískar herstöðvar. Verðið á Brent-hráolíutunnunni lækkaði um 5,5 prósent í morgun. Í frétt Reuters er haft eftir nafnlausum írönskum embættismanni að afstaða stjórnvalda í Teheran sé áfram sú að hverri árás verði svarað. „Ef árásirnar hætta mun Íran einnig stöðva sínar aðgerðir. Þau skilaboð hafa þegar verið send Bandaríkjunum.“ Mike Waltz, sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Sameinuðu þjóðunum, sagði bandarískum fjölmiðlum í gær að Trump hefði ákveðið að gera hlé á árásum til að skapa rými fyrir viðræður. Komi enn til greina að hefja aftur stórfelldar árásir Bandarískir herforingjar hafa undanfarna daga varað við því að sprengjuárásir síðustu tveggja vikna, sem var ætlað að fæla Íran frá því að ógna siglingum um Hormússund, hefðu að mestu tæmt listann yfir þau skotmörk sem komi til greina. Þetta hefur Reuters eftir bandarískum embættismanni sem óskaði eftir nafnleynd. New York Times hefur greint frá því að Trump og ráðgjafar hans hafi tekið ákvörðun um að gera hlé á árásum meðal annars í ljósi þess að minna sé til af eldflaugum til að skjóta niður írönsk flugskeyti. Mike Waltz sagði NBC-sjónvarpsstöðinni í gær að bandaríski herinn „hefði allt sem hann þyrfti“. Reuters hefur eftir nafnlausum embættismanni að það komi enn til greina að hefja á ný stórfelldar hernaðaraðgerðir í Íran. Á sama tíma hafi Dan Caine, formaður herforingjaráðsins, varað Trump við því að það væri áhættusamt í ljósi þeirra áhrifa sem slíkt hefði á skotfærabirgðir, þar á meðal birgðir flauga sem notaðar eru í loftvarnakerfum í Mið-Austurlöndum.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Bandaríkjamenn gerðu engar árásir á Íran í nótt, eftir tæplega tvær vikur af daglegum árásum. Donald Trump, forseti, hefur íhugað að auka umfang árása gegn Íran enn frekar en JD Vance, varaforseti, Dan Caine, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, og aðrir ráðgjafar forsetans eru sagðir hafa lýst yfir áhyggjum vegna þeirra ætlana. 26. júlí 2026 08:38 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Sjá meira
Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Bandaríkjamenn gerðu engar árásir á Íran í nótt, eftir tæplega tvær vikur af daglegum árásum. Donald Trump, forseti, hefur íhugað að auka umfang árása gegn Íran enn frekar en JD Vance, varaforseti, Dan Caine, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, og aðrir ráðgjafar forsetans eru sagðir hafa lýst yfir áhyggjum vegna þeirra ætlana. 26. júlí 2026 08:38