Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Eiður Þór Árnason skrifar 27. júlí 2026 08:54 Nicusor Dan, forseti Rúmeníu og Maia Sandu, forseti Moldóvu. Ap/Teresa Suares Rúmenía skaut í gær niður dróna sem flaug inn í lofthelgi landsins en talið er að hann hafi verið á vegum Rússa. Þetta var í þriðja sinn sem það gerist á jafnmörgum dögum, að sögn forseta landsins.
Tvær rúmenskar F-16 orrustuþotur voru sendar á loft undir stjórn Atlantshafsbandalagsins (NATO) og skutu drónann niður yfir Svartahafi, að sögn NATO. „Nýr dróni var skotinn niður í morgun, klukkan 10:13, af F-16 flugvél rúmenska flughersins, yfir landhelgi Rúmeníu, á Sulina–Chilia svæðinu,“ sagði Nicusor Dan, forseti Rúmeníu, í gær. Hann bætti við að rannsókn hefði leitt í ljós að einn af þeim drónum sem hefðu áður verið stöðvaðir virtist vera „af Shahed-gerð, sem Rússneska sambandsríkið notar í árásarstríði sínu gegn Úkraínu.“ Þetta er haft eftir Dan í frétt AP-fréttaveitunnar en Rúmenía er bæði hluti af Evrópusambandinu og NATO. Í fjórða sinn á skömmum tíma Þetta er í fjórða sinn á skömmum tíma sem Rúmenía skýtur niður dróna sem rýfur lofthelgi NATO, að sögn Martin O'Donnell, talsmanns bandalagsins. Hann bætti við að áður en þrír drónar voru stöðvaðir innan rúmenskrar lofthelgi hefðu rúmenskar þotur skotið niður dróna yfir Eistlandi í maí. Rúmenskir flugmenn og flugvélar eru staðsett í Litáen og eru hluti af viðbúnaði NATO. Rúmenía hefur sett upp MEROPS-drónavarnarkerfið sem setur tiltölulega ódýra, tæplega metra langa dróna á loft til að granda Shahed-drónum og öðrum afbrigðum. Kerfið er hluti af efldri varnargetu bandalagsins gegn drónaógnum meðfram austurlandamærum NATO. Í maí lenti rússneskur dróni sem átti að fara til Úkraínu á fjölbýlishúsi í austurhluta Rúmeníu. Tveir slösuðust og óttast var að stríðið teygði sig inn á yfirráðasvæði NATO. „Það er óásættanlegt og óþolandi að Rússneska sambandsríkið haldi áfram að rjúfa rúmenska lofthelgi sem er einnig lofthelgi NATO og Evrópusambandsins,“ sagði Dan, forseti Rúmeníu. „Slíkar aðgerðir eru óviðunandi og við tökum þær mjög alvarlega ásamt bandamönnum okkar.“ Fjöldi dróna frá Rússlandi og Úkraínu hefur farið inn í lofthelgi Rúmeníu og annarra NATO-ríkja frá því að Moskva hóf allsherjarinnrás sína á Úkraínu í febrúar 2022.
Rúmenía NATO Rússland Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira