Fifa gefur út hvað Argentína er rannsakað fyrir eftir heimsmeistaramótið Andri Broddason skrifar 29. júlí 2026 22:31 Fifa hefur gefið út hverjir eru undir rannsókn fyrir átökin eftir úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta. Tom Weller/Getty Images Fifa hefur gefið út hvað er verið að rannsaka hjá argentíska landsliðinu í fótbolta. Bæði stuðningsmenn og leikmenn liðsins brutu reglur alþjóða knattspyrnusambandsins á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Sérstaklega er verið að rannsaka hegðun leikmanna eftir úrslitaleik mótsins.
Það fór ekki fram hjá mörgum þegar Spánn lagði Argentínu í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta en eftir leikinn brutust átök milli leikmanna Argentínu og Spánar. Verið er að rannsaka Nahuel Molina og Leandro Paredes, leikmenn Argentínu, vegna árása þeirra á leikmenn Spánar. Einnig er aðstoðarþjálfari liðsins, Roberto Ayala, rannsakaður fyrir árás. Ásamt því að vera ásakaður um árás er Molina einnig undir rannsókn vegna óíþróttamannslegrar hegðunar eftir úrslitaleikinn. Spænskir leikmenn eru ekki lausir við alla rannsókn en Thiago Almanda og Gavi eru einnig rannsakaðir fyrir óíþróttamannslega hegðun. Samkvæmt reglum Fifa fá leikmenn sem gerast sekir um óíþróttamannslega hegðun eins leiks bann en þeir sem gerast sekir um árás fá þriggja leikja bann. Argentíska knattspyrnusambandið er einnig undir rannsókn bæði fyrir hegðun liðsins sem heild og stuðningsmanna. Það sem bar sérstaklega upp úr hjá leikmönnum Argentínu er að eftir sigur á Englandi í undanúrslitaleiknum héldu þeir upp borða sem á stóð: „Falklandseyjar tilheyrir Argentínu“. Við það notaði liðið íþróttaviðburð til að koma pólitískum skilaboðum á framfæri en Falklandseyjar hafa verið ástæða stríðsátaka Englands og Argentínu. Stuðningsmenn Argentínu eru einnig undir rannsókn vegna niðrandi söngva sem þeir sungu á leikjum Argentínu auk þess að hafa kastað aðskotahlutum inn á völlinn í miðjum leik. Argentíska knattspyrnusambandið má búast við sektum fyrir hvort tveggja.
HM 2026 í fótbolta Argentína Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Fleiri fréttir Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Sjá meira