Þróttur tók toppsætið af Aftureldingu tveimur mönnum fleiri Andri Broddason skrifar 29. júlí 2026 22:02 Afturelding missti toppsætið og tvo leikmenn af velli gegn Þrótti í Lengjudeild karla. Anton/Vísir Kvöldið var efni í martraðir fyrir Aftureldingu sem tapaði 4-1 fyrir Þrótti í Lengjudeild karla. Þróttur tók toppsæti deildarinnar af Aftureldingu með sigrinum.
Toppslagurinn í Lengjudeild karla er gríðarlega jafn en fyrir leiki kvöldsins voru aðeins þrjú stig milli toppliðsins og fjórða sætis. Á 28. mínútu fékk Þróttur vítaspyrnu þar sem Kári Kristjánsson steig á punktinn og skoraði örugglega. Stuttu eftir það myndaðist mikill hiti hjá varamannaskýlum beggja liða sem endaði með því að Enes Cogic, aðstoðarþjálfari Aftureldingar, fékk rautt spjald. Á 35. mínútu bætti Aron Snær Ingason við öðru marki Þróttar. Eftir markið náði Þróttur að vinna boltann og komst í skyndisókn þar sem Örn Bragi Hinriksson var að sleppa inn fyrir vörn Aftureldingar. Andi Hoti felldi hann og fékk rautt spjald að launum. Staðan var virkilega slæm fyrir Aftureldingu sem var tveimur mörkum undir og manni færri þegar tæpar 50 mínútur voru eftir. Áður en flautað var til hálfleiks bætti svo Aron Snær við sínu öðru marki og Þróttur var 3-0 yfir í hálfleik. Snemma í seinni hálfleik bætti Örn Bragi Hinriksson við fjórða marki Þróttar og öll von fyrir Aftureldingu var endanlega úti. Undir lok leiks skoraði Trausti Þráinsson sárabótamark fyrir Aftureldingu. Lokatölur leiksins er mikilvægur 4-1 sigur Þróttar á Aftureldingu. Með sigrinum hrifsar Þróttur toppsæti Lengjudeildar karla af Aftureldingu. Fylkir er með jafn mörg stig og Þróttur en mun betri markatala heldur þeim í toppsætinu. Afturelding féll úr toppsætinu niður í það þriðja eftir leikinn. Liðið á þó leik til góða og getur endurheimt toppsætið með sigri. Upplýsingar um atvik leiksins fengin af Fótbolti.net
Lengjudeild karla Íslenski boltinn Þróttur Reykjavík Afturelding Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Sjá meira