„Leiðinlegt að þetta sé búið“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 30. júlí 2026 21:00 Gunnar Jónas Hauksson er stoltur af Evrópuleikjum Vestra. Vestri Vestri gerði sitt fyrsta jafntefli í Evrópukeppni í sögu félagsins þegar liðið mætti RFS frá Lettlandi í síðari leik liðanna í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta karla á Þróttarvelli í Laugardal í kvöld. Leiknum lauk 1-1 og RFS vann einvígið samanlagt 2-5. „
Það er hrikalega flott að hafa náð jafnteflinu en svekkelsi að hafa ekki náð að klára þennan leik fyrir rest. Það er svolítið þannig,“ sagði Gunnar Jónas Hauksson, miðjumaður Vestra, í samtali við Vísi eftir leikinn. Vestri náði forystunni snemma leiks, á tólftu mínútu, og þá fóru liðsmenn að trúa því að endurkoma væri möguleg. „Já, það kom alveg smá neisti í liðið en þetta lið refsar þegar það fær tækifæri og sýndi það. Þetta er hörkulið, sem sýndi það líka í dag,“ sagði hann. RFS jafnaði metin nefnilega aðeins fjórum mínútum síðar. Hefur verið algjört ævintýri Gunnar Jónas er mjög ánægður með að hafa fengið tækifæri til þess að spila með Vestra í Evrópukeppni en viðurkennir trega vegna þeirrar staðreyndar að þátttöku liðsins í Evrópukeppni er lokið í ár. „Þetta hefur verið algjört ævintýri og nýtt fyrir flesta strákana í liðinu. Það er leiðinlegt að þetta sé búið. Það er hundleiðinlegt,“ sagði hann. Fram undan er hörð barátta um að ná umspilssæti í Lengjudeildinni. Gunnar Jónas sagðist engar áhyggjur hafa af því að erfitt verði að gíra sig upp í þá baráttu. „Nei, það verður fullur fókus á deildina. Við ætlum að ná þessum efri liðum og koma okkur allavega í þessi umspilssæti. Það er alveg klárt mál.“
Sambandsdeild Evrópu Vestri Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Sjá meira