Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sigurgeir Þorkelsson og Agnar Már Másson skrifa 1. ágúst 2026 11:23 Einn hinna þriggja sem færðir voru á lögreglustöð til yfirheyrslu í gær. Vísir/Viktor Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna. Yfirheyrslur fóru í gær fram yfir öllum tuttugu og einum áhafnarmeðlimum. Þetta staðfestir Skúli Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Þrír hæst settu mennirnir um borð, skipstjóri, stýrimaður og yfirvélstjóri, voru allir færðir til yfirheyrslu á lögreglustöð. Aðrir áhafnarmeðlimir voru ýmis yfirheyrðir um borð í varpskipinu Freyju, sem fylgt hafði Bandero til hafnar í Reykjavík, eða í landi í aðstöðu Faxaflóahafna. „Það er búið að yfirheyra alla og ekki talin þörf á því,“ sagði Skúli um mögulega gæsluvarðhaldskröfu en frestur lögreglunnar til að fara fram á slíkt rann út klukkan ellefu í gærkvöldi. Áhöfninni er þó enn um sinn gert að halda sig um borð í Bandero. Ekki er vitað hve lengi það ástand mun vara. „Fólki er gert að halda sig um borð í bátnum,” segir Skúli. „Það voru allir handteknir.“ Unnið er að brottvísun „Það er unnið að því að brottvísa þessu fólki,“ upplýsir Skúli, en í fréttum okkar í gær kom fram að greinargerð þess eðlis hafi verið send til Útlendingastofnunar til yfirferðar. Farið er fram á tveggja ára farbann yfir hópnum, sem telst íþyngjandi fyrir þau fjórtán sem ekki eru með ríkisborgararétt innan Schengen-svæðisins, að því er kom fram í máli Ásgeirs Þórs Ásgeirssonar í kvöldfréttum Sýnar okkar í gær. Þá hefur skipið verið kyrrsett en það var skoðað af fulltrúum Samgöngustofu í gær og hefur verið kyrrsett. Þá haldlagði lögregla muni um borð í skipinu í þágu rannsóknar málsins, svo sem tölvur og minniskort af myndavélum. Skúli segist ekki vita hvort áhafnarmeðlimir eigi yfir höfði sér ákæru.
Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Lögreglumál Landhelgisgæslan Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira