Rúnar og þrír leikmenn missa af leiknum við KR Valur Páll Eiríksson skrifar 1. ágúst 2026 18:08 Rúnar Kristinsson fær ekki að stýra Fram gegn KR í næstu umferð. Vísir/Diego Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, missir af leik hans manna við uppeldisfélag hans KR í næstu umferð í Bestu deild karla.
Fram fór upp í annað sæti deildarinnar, upp fyrir KR, þökk sé 2-1 sigri á ÍBV í Vestmannaeyjum í Þjóðhátíðarleiknum í Bestu deild karla í dag. Rúnar lýsti því yfir í viðtali við Vísi fyrir leik að hann væri á leið á Þjóðhátíð í fyrsta sinn á ævinni, 57 ára gamall. Hann virðist ekki hafa verið hressari með það en svo að hann lét dómara leiksins heyra það. Honum var vísað af velli með rautt spjald vegna mótmæla þegar skammt var eftir af leiknum. Hann fer því í leikbann og fær ekki að vera á hliðarlínunni þegar Fram mætir KR, fyrrverandi liði Rúnars, í næstu umferð. Aðstoðarþjálfarinn Helgi Sigurðsson mun því stýra Fram í leiknum en hann stýrði Fram einnig í leik við Keflavík í Reykjanesbæ fyrr í sumar þegar Rúnar var fjarverandi vegna veikinda. Þeim leik lauk með 1-1 jafntefli. Þrír aðrir Framarar missa af leiknum við KR. Ægir Jarl Jónasson, Israel García og Sigurjón Rúnarsson fara allir í bann vegna uppsafnaðra gulra spjalda en þeir voru allir bókaðir í Eyjum í dag. Kennie Chopart, fyrrverandi leikmaður KR, mætir galvaskur til leiks gegn KR-ingum þann 10. ágúst. Hann tók út leikbann í leik dagsins vegna uppsafnaðra gulra spjalda. Fjallað var um það í Stúkunni á Sýn Sport eftir síðustu umferð að Chopart hafi fengið viljandi gult spjald í síðasta leik til að fá bannið gegn ÍBV, til að geta mætt KR í leiknum á eftir.
Fram KR Besta deild karla Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Israel frá Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Sjá meira