„Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 3. ágúst 2026 13:51 Ágúst Brynjarsson segist ekki hafa verið stressaður fyrir því að leiða brekkusönginn á Þjóðhátíð enda hafi hann undirbúið sig vel. Jonfromiceland Tónlistarmaðurinn Ágúst Brynjarsson leiddi brekkusönginn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gær, á lokadegi hátíðarinnar. Hann segir frumraun sína í að stýra söngnum hafa gengið eins og í sögu og vel hafi tekist að blanda saman gömlu hefðunum við ný lög.
Vísir sló á þráðinn hjá Ágústi er hann var um borð í Herjólfi á leiðinni heim frá Eyjum. „Maður er bara enn þá að ná sér niður,“ segir hann. Hann tók við starfi brekkusöngsstjóra af Magnúsi Kjartani sem hefur stýrt söngnum undanfarin ár. „Ég held að þetta hefði ekki getað gengið betur í orðsins fyllstu merkingu. Það gekk allt upp hjá mér persónulega sem ég var búinn að æfa og undirbúa og svo er búið að vera svakalega gaman. Ég fékk skilaboð frá Eyjamanni sem er að klára sína fimmtugustu þjóðhátíð og hann sagði að þetta væri besti brekkusöngur sem hann man eftir. Þannig að ég er svolítið svífandi á bleiku skýi þessa dagana,“ segir Ágúst. Að brekkusöng loknum voru hin hefðbundnu blys tendruð í hlíðum dalsins, eitt fyrir hverja Þjóðhátíð sem haldin hefur verið í Vestmannaeyjum.Sigurður Pétur Jóhannsson Hann hafi tvisvar áður farið á Þjóðhátíð sem gestur og nú þrisvar sem tónlistarmaður og alltaf sé jafn gaman. „Ég er bæði búinn að upplifa að fara sem þjóðhátíðargestur og hef fengið smá reynslu sem artisti líka, þannig þetta er svona blanda af báðu.“ Hann hafi fengið óvænt símtal í febrúar þar sem hann var beðinn um að stýra söngnum og auðvitað kom ekkert annað til greina en að taka því tilboði enda sé þetta risastórt tækifæri. „Þetta er bara það stærsta ef maður pælir í þessu, það verður ekki mikið stærra en þetta.“ Ýmsar nýjungar í bland við gömlu hefðirnar Ágúst stýrði brekkusöngnum í fyrsta skipti og segist hafa reynt að blanda saman föstum liðum brekkusöngsins og nýjum lögum sem hafi lukkast afskaplega vel. „Maður tók svona bland í poka til að reyna að reyna að vera með eitthvað fyrir alla landann. „Þetta var mjög gaman að maður náði að setja sitt mark á þetta. Ég reyndi að finna eitthvað sem var nýtt og ferskt sem hefur ekki verið gert áður í bland við bara þessar stórkostlegu hefðir sem eru alltaf í Brekkusöngnum. Ég náði að troða inn lögum fyrir yngri kynslóðina, svona framtíðarþjóðhátíðargesti, og tók Sumartímann með 12:00. Það var mjög gaman og sló alveg rækilega í gegn í brekkusöngnum.“ Veður hefur leikið við Þjóðhátíðargesti og hann segir hátíðina ekki hafa gengið mikið betur. Stuðlabandið tók síðan við á Stóra sviðinu og dansleikurinn hélt áfram fram undir morgun þegar Þjóðhátíð 2026 lauk formlega.Sigurður Pétur Jóhannsson „Þetta var bara frábært. Frábært veður, vindurinn hreyfðist ekki og smekkfullur dalur og ég segi, það heyrði ég líka sagt orðað um þetta betur að þetta bara hefði bókstaflega ekkert gengið betur, bara á öllum vígstöðvum sko.“ Varstu ekkert stressaður? „Ég er búinn að fá þessa spurningu mjög oft en ég var eiginlega ekkert stressaður. Auðvitað fékk ég svona fiðringinn í magann af spennu þegar ég var kominn bak við sviðið og leit út í dal. Þá var ég bara: Ókei, heyrðu, þetta er að fara að gerast. En ég var bara í mínum eigin haus búinn að undirbúa mig það vel að ég vissi nákvæmlega hvað ég væri að fara að gera frá upphafi til enda og manni líður bara vel í skrokknum og hausnum þegar maður er búinn að ná utan um verkefnið. Stressið poppar upp þegar þú heldur að þú sért ekki með þetta,“ segir Ágúst. Eins og áður sagði hefur Ágúst troðið upp tvisvar áður á Þjóðhátíð með ballhljómsveitunum Stuðlabandinu og Færibandinu. Nú hafi hann sagt skilið við þann bransa og einbeiti sér alfarið að eigin tónlist. „Ég hef verið í balldransanum síðustu ár en núna er ég búinn að segja skilið við það til þess að fókusa á einmitt minn eigin tónlistarferil og svo þetta verkefni.“
Þjóðhátíð í Eyjum Verslunarmannahelgin Tónlist Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Fleiri fréttir Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Sjá meira