Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar 4. ágúst 2026 08:00 Í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst hefur því verið haldið fram að ekki sé um samningaviðræður að ræða heldur „aðlögun“ að Evrópusambandinu. Þannig hafi Ísland ekkert um sín hlutskipti að segja í viðræðum við Evrópusambandið um aðild, heldur sé búið að ákveða allt fyrirfram. Það er vissulega rétt að Evrópusambandið krefur umsóknarríki sín um að réttarríki, stjórnsýsla og stofnanir séu undir þann stakk búnar að geta verið fullgengt aðildarríki. Það er einnig rétt að umsóknarríki geta þurft að aðlaga sig, sína stjórnsýslu og kerfi að kröfum ESB. Þessi „aðlögun“ þarf jafnvel að eiga sér á meðan samningaviðræður eru í gangi. En hvað þýðir það í tilfelli Íslands? Kaupmannahafnarskilyrðin Þegar ESB talar um „aðlögun“ er yfirleitt verið að vísa til þeirra breytinga sem umsóknarríki þurfa að ráðast í til að uppfylla Kaupmannahafnarskilyrðin. Þetta eru þrjú skilyrði sem eru forsendur þess að ríki geti orðið hluti af Evrópusambandinu. Þau eru: Lýðræði og réttarríki: Stöðugar stofnanir sem tryggja lýðræði, réttarríki, mannréttindi og vernd minnihlutahópa. Markaðshagkerfi: Virkt markaðshagkerfi sem þolir samkeppni á innri markaði sambandsins. Regluverk (Acquis communautaire): Vilji og geta til að taka upp allan stofnsáttmálann og lög Evrópusambandsins. Skilyrðin eru frá 1993, sett fram í kjölfar falls kommúnismans þegar fyrrum austantjaldsríki litu í meira mæli til Evrópusambandsins. Mörg þessara ríkja bjuggu ekki við traust lýðræði, virkt réttarríki eða markaðshagkerfi. Sums staðar eru þessi viðmið ennþá ennþá til trafala og því hefur mikið púður farið í það að „aðlögun“ stjórnarfar, réttarríki og stofnanir þessara landa þeim gildum sem Evrópusambandið byggir á. Helsta áskorunin fyrir flest umsóknarríki er að uppfylla þessar kröfur: Lýðræði, réttarríki, virkt markaðshagkerfi og skilvirka stjórnsýslu. Það á ekki við um Ísland. Ísland uppfyllir Kaupmannahafnarskilyrðin. Þetta er staðhæft allt frá fyrsta áliti Framkvæmdastjórnarinnar frá 24. febrúar 2010. Áskorun aðildar: Lýðræði og réttarríkið? Mögrum ætti að vera kunnugt um hina margumtöluðu IPA-styrki sem Ísland fékk á meðan aðildarviðræður stóðu yfir. Þetta eru styrkir sem ESB veitir umsóknarlöndum til þess að undirbúa stjórnkerfi og markaðshagkerfi sitt til að vera í stakk búið að taka þátt í Evrópusambandinu. Sumir hafa jafnvel kallað þessa styrki „aðlögunarstyrki“, sem er svo sem í eðli sínu ekki endilega rangnefni. Markmiðið er að löndin aðlagist gildum á borð við virðingu fyrir mannréttindum minnihlutahópa, breyti dómskerfinu sínu þannig að það sé sjálfstætt og sanngjarnt, réttarvörslukerfinu þannig að þar ríki ekki spilling. Breytist og aðlagist þannig að stjórnarfarið þar sé virkt og byggist á hugmyndum um frjálst lýðræði. Til dæmis má lesa skýrslur frá 2011 um Norður-Makedóníu, Serbíu og Króatíu þar sem er rætt hvaða verkefnum IPA-styrkirnir þurfi að beinast að. Þar er styrkjunum beint í verkefni sem eiga að styrkja réttarríkið og mannréttindi og auka viðnámsþrótt efnahagsins, svo fátt eitt sé nefnt. Fyrir flest umsóknarríki hefur hin eiginlega „aðlögun” falist í að efla réttarríki, draga úr spillingu, styrkja dómstóla og byggja upp stjórnsýslu. Ísland stendur ekki frammi fyrir slíkum áskorunum. Áskorun Íslands: Að efla þýðingamiðstöð og styrkja stjórnsýsluna Hverjar felast þá áskoranir Íslands? Í skýrslu um stöðu Íslands er farið yfir á hvaða sviðum Ísland þurfi að styrkjast. Þar er ekki minnst á þörf á að styrkja dómstóla, uppræta spillingu eða byggja upp stjórnsýslu. Vissulega er þess getið að stjórnsýsla Íslands sé lítil, en það er varla stóra fréttin úr þessari skýrslu. Stóru tíðindin er að Ísland stenst Kaupmannahafnarskilyrðin og að IPA-styrkirnir fari í það að efla þýðingarmiðstöð Íslands, byggja upp þekkingu og að styrkja stjórnsýsluna með endurmenntun og þjálfun sérfræðinga til að takast á við ESB-sérhæfð verkefni. Verkefnin sem IPA-styrkirnir fóru í í fyrra aðildarferli Íslands voru á borð við að þýða regluverk Evrópusambandsins (eitthvað sem hefur einfaldast til muna með tilkomu mállíkana), styrkja Hagstofuna til þess að taka saman ýmisskonar tölfræði og endurnýjun á tollkerfi Tollstjórans, sem var komið til ára sinna. Í þessum verkefnum er engin meiriháttar „aðlögun“ að eiga sér stað. Ekkert af þessum verkefnum fólst í að endurreisa stjórnsýsluna frá grunni, verkefni um að auka lýðræðis- og mannréttindavitund almennings, eða að uppræta spillingu í löggæslu og dómskerfinu. Það er nokkuð einstakt að ári eftir að aðildarumsóknarferlið fór síðast formlega í gang að efling þýðingamiðstöðvar og gerð nýs tollkerfis hafi verið meginverkefni í aðdraganada inngöngu inn í sambandið. Sterk staða þrátt fyrir litla stjórnsýslu Ísland er með virkt markaðshagkerfi, öfluga stjórnsýslu sem hefur sýnt fram á getu til að innleiða regluverk Evrópusambandsins og er með öflugt réttarríki sem virðir mannréttindi. Ísland er jafnvel leiðandi á ýmsum af þessum sviðum. Sérstaða Íslands er dregin fram í skýrslu utanríkisráðherra frá 2013 um stöðu samningaviðræðna Íslands og ESB þar segir á bls. 31: „Þess skal getið að það þykir einsdæmi að kafli sem tekur til þessa málefnasviðs, þ.e. réttarvörslu og grundvallarréttinda, sé opnaður og jafnframt lokað til bráðabirgða á sömu ríkjaráðstefnu, þar sem kaflinn hefur reynst nýrri aðildarríkjum Evrópusambandsins einn sá erfiðasti í viðræðum þeirra um aðild.“ Að fullyrða að aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið séu ekkert annað en aðlögunarviðræður er því reynd fullyrðing um að Ísland sé ekki með virkt markaðshagkerfi, sé ekki með virkt réttarríki og eigi í erfiðleikum með að virða mannréttindi. Bersýnilega gengur því fullyrðing um aðlögunarviðræður ekki upp. Engin aðlögun í sjónmáli Þegar uppi er staðið er Ísland nú þegar búið að uppfylla nær allar þær kröfur sem Evrópusambandið gerir til þess að geta gengið inn í Evrópusambandið. Við þurfum þannig ekki að „aðlagast“ því við uppfyllum Kaupmannahafnarskilyrðin. Engin af þeim IPA-verkefnum eða „aðlögunarstyrkjum“ fólu á sínum tíma í sér óafturkræfa aðlögun á stjórnkerfi Íslands, heldur fóru þeir í að styrkja getu stjórnsýslunnar eða auka tæknilega samhæfingu til að geta sinnt þeim verkefnum sem felst í því að vera fullgildur aðili að sambandinu. Í umræðu um aðild að Evrópusambandinu er stundum gefið í skyn að meint „aðlögun“ feli í sér upptöku regluverks ESB fyrir inngöngu, t.d. sameiginlega landbúnaðar- eða sjávarútvegsstefnu. Það er fjarri lagi. Í samningaviðræðum við ESB kunna hinsvegar að koma upp álitamál um hvernig stofnanaumgjörð Íslands vilji, geti og ætli að takast á við að framkvæma reglur sambandsins. Það þýðir þó ekki að Ísland þurfi að aðlaga stofnanir og regluverk fyrir aðild að ESB. Þess í stað verði hægt að sýna fram á með tímasettum áætlunum hvernig við ætlum að innleiða það sem út af ber eftir að af hugsanlegri aðild verður. Ísland á að geta gengið hnarreist til samninga við Evrópusambandið. Verkefni Íslands í áframhaldi aðildaviðræðum er ekki að „aðlagast“ Evrópusambandinu heldur að semja um hvernig tekið yrði mið af sérstöðu Íslands og hvernig sérstaða Íslands getur styrkt Evrópusambandið. Höfundur er sagnfræðingur og með meistaragráðu frá Oxfordháskóla, aðstoðarmaður þingflokks Samfylkingarinnar og fyrrverandi skrifstofustjóri þingmanns á Evrópuþinginu og notaði ekki gervigreind til að skrifa þessa grein. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Mest lesið Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun