Fyrsta platan í tuttugu ár Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. ágúst 2026 09:02 Bragi Valdimar, Sigtryggur og Kiddi hjálmur standa að baki plötunni ásamt einvalaliði hljóðfæraleikara og söngvara. Bogomil Font og Greiningardeildin senda frá sér á föstudaginn plötuna Haf þú ekki áhyggjur af því, fyrstu plötu Bogomils í tuttugu ár. Sigtryggur Baldursson, Bragi Valdimar og Kiddi hjálmur standa að baki verkefninu og er að finna tíu ný frumsamin „kulda-kalypsólög“ (sem hafa sum þegar ratað í eyru landsmanna).
Fyrsta lagið af plötunni, „Sjóddu frekar egg“, kom út snemma árs 2024 og setti tóninn fyrir verkefnið. Lögin læddu sér svo út eitt af öðru, þar til komið var efni á heila plötu. Sigtryggur, Kiddi og Bragi hafa séð um tónlistarþáttinn Hljómskálann á Rúv frá 2011 og því er Greiningardeild Hljómskálans skráð fyrir efninu. Umslag nýju plötunnar er hannað af Páli Ivan frá Eiðum. Lög og textar eru að mestu eftir Braga Valdimar, fyrir utan lagið um karlana sem geta ekki verið til friðs, sem er eftir Sigtrygg. Kiddi sá um upptökur, hljóðblöndun og fíling í hinu fornfræga hljóðveri Hljóðrita í Hafnarfirði, Sigurður Guðmundsson og Árný Margrét aðstoðuðu við upptökur. Fjöldi öflugra tónlistarmanna kemur við sögu á plötunni, Eyþór Gunnarsson á píanó, Þorsteinn Einarsson á gítar og Rubin Pollock á bassa og ýmsa gítara. Einnig má nefna Tómas Jónsson, Árnýju Margréti, Salóme Katrínu, Rakel Sigurðardóttur, Emilíönu Torrini, Samúel Jón Samúelsson, Óskar Guðjónsson, Kjartan Hákonarson og Eirík Orra Ólafsson. „Íslenskumælandi innflytjandi frá Trinidad“ Blaðamaður heyrði aðeins hljóðið í Sigtryggi, sem syngur á plötunni sem Bogomil Font og sér um trumbuslátt, til að forvitnast um Haf þú ekki áhyggjur af því. Tuttugu ár frá síðustu plötu, hvað veldur þessari löngu bið? „Bogomil lagðist svolítið í dvala þegar Sigtryggur tók við ÚTÓN árið 2012 en reis á ný á 30 ára afmæli plötunnar Ekki þessi Leiðindi árið 2023,“ sagði Sigtryggur. Sigtryggur Baldursson er alltaf í fíling.Juliette Rowland Hverju eiga hlustendur von á? Er þetta gamli góði Bogomil eða er eitthvað óvænt þarna? „Bógomil er soldið síbreytilegur en er alltaf að gera eitthvað sem honum þykir skemmtilegt hverju sinni. Hann er nú alltaf hallur undir bítmusik frá suðurlöndum og er hér að vinna með svokallaðan kulda kalypsó sem mætti segja að væri íslenskumælandi innflytjandi frá Trinidad.“ Útgáfutónleikar plötunnar verða haldnir annars vegar á Græna hattinum á Akureyri föstudaginn 7. ágúst og á Ægi 220 í Hafnarfirði laugardaginn 8. ágúst. Svo verða tónleikar á kaffi Flóru í Laugardal þann 20. ágúst. Miðasalan er á tix.is.
Tónlist Tímamót Tónleikar á Íslandi Tengdar fréttir Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið „Það er allt svo nær fyrir norðan en það er skítaveður hér,“ segir í viðlagi á splunkunýju lagi sem sveitin Bogomoili Font & Greiningardeildin var að senda frá sér. Mennirnir á bak við lagið eru Sigtryggur Baldursson, Bragi Valdimar Skúlason og Guðmundur Kristinn Jónsson. 17. september 2024 13:31 Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira
Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið „Það er allt svo nær fyrir norðan en það er skítaveður hér,“ segir í viðlagi á splunkunýju lagi sem sveitin Bogomoili Font & Greiningardeildin var að senda frá sér. Mennirnir á bak við lagið eru Sigtryggur Baldursson, Bragi Valdimar Skúlason og Guðmundur Kristinn Jónsson. 17. september 2024 13:31