Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði Árni Sæberg skrifar 4. ágúst 2026 16:01 21 skipverji er um borð í Bandero. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ógilt ákvörðun Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um að skipverji skipsins Bandero skuli halda sig um borð í skipinu. Lögregla mun kæra úrskurð þess efnis til Landsréttar.
Þetta staðfestir Arnar Kormákur Friðriksson, réttargæslumaður eins skipverjanna um borð í Bandero, í samtali við Vísi. Hann kveðst ekki búa yfir upplýsingum um það hvort aðrir skipverjar hafi kært ákvörðun lögreglu. Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður gætir réttinda skipverjans.Vísir/Anton Brink Þá segir hann umbjóðanda sinn ekki vera lausan allra mála enn en lögregla hafi þegar kynnt honum ákvörðun um að hann þurfi að halda sig á höfuðborgarsvæðinu og sinna tilkynningarskyldu. Gættu ekki meðalhófs Sá kærði ákvörðun lögreglu um að meina skipverjum að fara frá borði en Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði um kæruna síðdegis. Áhafnarmeðlimurinn vildi meina að ákvörðun lögreglu væri of íþyngjandi. Arnar Kormákur segist ekki hafa kynnt sér úrskurð héraðsdóms í þaula en niðurstaðan byggi á því að lögregla hafi ekki gætt meðalhófs. Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við fréttastofu fyrr í dag að hann teldi það furðulegt af áhöfninni að halda því fram að ekki væri mannsæmandi að dvelja um borð í skipinu eftir að hafa gert það af sjálfsdáðum undanfarnar vikur úti á ballarhafi. Skipið óhaffært og skipverjarnir mögulega sendir úr landi Skipið sjálft var úrskurðað óhaffært af Samgöngustofu á föstudagskvöldið. Skipaskoðunarmenn stofnunarinnar fóru um borð á föstudaginn. Öllum þeim 21 sem eru um borð var tilkynnt um mögulega brottvísun og endurkomubann á föstudaginn. Skjölin voru á íslensku en túlkur aðstoðaði lögreglu við þýðingu. Þá var lögmaður fyrir hvern og einn áhafnarmeðlim ræstur út á föstudaginn og eru því réttargæslumenn í tugatali. Andmælaréttur skipverja er liðinn.
Hvalveiðar Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Tengdar fréttir Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Paul Watson-samtökin gagnrýna harðlega meðferð áhafnar Bandero, segja lagalegar forsendur þess að þeim sé haldið óljósar og að áhöfnin hafi ekki fengið að setja sig í samband við ástvini sína og lögmann. Meðferðin veki upp stórar spurningar þegar komi að lagalegum réttindum og mannréttindum. 1. ágúst 2026 17:02 Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna. Yfirheyrslur fóru í gær fram yfir öllum tuttugu og einum áhafnarmeðlimum. Þetta staðfestir Skúli Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 1. ágúst 2026 11:23 Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Gular viðvaranir á morgun Veður Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Fleiri fréttir Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Sjá meira
Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Paul Watson-samtökin gagnrýna harðlega meðferð áhafnar Bandero, segja lagalegar forsendur þess að þeim sé haldið óljósar og að áhöfnin hafi ekki fengið að setja sig í samband við ástvini sína og lögmann. Meðferðin veki upp stórar spurningar þegar komi að lagalegum réttindum og mannréttindum. 1. ágúst 2026 17:02
Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna. Yfirheyrslur fóru í gær fram yfir öllum tuttugu og einum áhafnarmeðlimum. Þetta staðfestir Skúli Jónsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 1. ágúst 2026 11:23