Innlent

Fór úr bílnum og hljóp undan lög­reglu

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Ökumaðurinn reyndist án réttinda og undir áhrifum.
Ökumaðurinn reyndist án réttinda og undir áhrifum. vísir/Vilhelm

Lögregla gaf ökumanni fyrirmæli um að stöðva akstur með forgangsljósum í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. Þau virti hann ekki, stöðvaði þó síðar bílinn en hljóp þá af stað undan lögreglu.

Að því er fram kemur í dagbók lögreglu náðist maðurinn skömmu síðar og reyndist þá vera réttindalaus og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sömuleiðis var hann með fíkniefni á sér.

Einnig var tilkynnt um innbrot og þjófnað í sama umdæmi og er málið til rannsóknar hjá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×